Lítið að segja
Nú er maður búinn að fara í klippingu og láta snoða sig, hún er svo elskuleg hún Carmen hárgreiðslukona hvað hún getur dundað við hárið á manni hún grandskoðar hverja lufsu og athugar hvort þetta sé nú jafnt alltsaman og ekki er hún að flýta sér. Það tekur alveg 1 1/2 klukkutíma að fara í klippingu bara í klippingu. Nú erum við aðeins að spjalla bara voða lítið en nú skil ég þó hvað hún er að segja við mig. Hvort ég vilji blástur eða froðu. Hún er líka voða hrifin af þessu norræna gráa hári og finnst það svo normal, af því ég lita það ekki eins og flestar spænskar konur gera. Dúddi fór líka að láta snoða sig í leiðinni.
Dúddi var svo að hjálpa Fermín að gera við sprungna slöngu í hjólinu hans. Og það er ákveðið eins og fyrri ár að bíllinn fer inní bílskúr hjá honum, það þarf bara aðeins að taka til segir hann. Það er allt fullt af kartöflum hjá honum núna, hann var að taka upp í morgun, hann gaf okkur nokkrar stórar það dugar ein í matinn fyrir okkur. Þessi elska honum finnst svo gaman að segja Dúdda frá þegar hann fer að veiða, hann fékk nefnilega einn stóran ál alveg um 1 kíló núna eitt kvöldið, hann brosti hringinn þegar hann var að segja okkur þetta.
Við fórum eins og Íslendinga er siður í Evrovision partý og var það voða gaman og fjörugt kvöld.
Dúddi gaf mér myndavél í afmælisgjöf þó afmælið sé nú ekki fyrr en í júlí hún er voða góð svipuð og ég átti svo það er ekki mikið að læra og hún er BLEIK.
Hlakka til að sjá ykkur öll og eigið góða daga í kuldanum.
Þórdís, Dúddi, sunnudagur 22 maí kl: 13:49
Hæ Magni! já við fengum ál en gáfum hann, kann ekki að elda hann.
Við komum heim afðfaranótt 27. maí vonandi verður þá hætt að gjósa
svo hægt verði að fljúgja með okkur.
Magni, sunnudagur 22 maí kl: 21:47
Ég á fínar uppskriftir af Ál, mundu eftir að fá hjá mér áður en þú ferð aftur út.
Állin er rosalega góður steiktur, reyktur og á ótal marga vegu. Eg eldaði hann nokkrum sinnum sumarið sem við fiskuðum 10 eða 15 metra samtals af Ál í lóninu. Man að ég eldaði hann einu sinni fyrir Svenna og Ásu.
Hlakka til að hitta ykkur.
Kveðja M
Anna Lóa, mánudagur 23 maí kl: 21:32
Loksins komið þið heim, hlakka til að sjá ykkur.
Hringjumst á um helgina.
Ég á líka nýja bleika myndavél, erum við bleiku systurnar??
'eg kann ekki að matreiða ál, en kartöflur kann ég á.
Kveðja AL
Magni, sunnudagur 22 maí kl: 13:02
Halló halló.
Já hér er svalt og snjóar í sjó en ekki er það þykkt Það tekur strax upp af götunni og okkar megin í Firðinum.
Flottar kartöflurnar ekta bökunarkartöflur. Hafið þið fengið ál hjá Fermin ?
Hvaða dag komið þið til landsins ? það er alltaf verið að spyrja mig og ég segi bar 25 maí finnst það ekki verri dagsetning en hver önnur. Flott mynd úr nýju myndavélinni til hamingju með hana.
Bestu kveðjur
Magni