Valmynd Spurningin
Syrpur Athugasemdir

Rafmagnađ

Fallegust!
Fallegust!
Saga, nýkomin úr sundi. Þá verður hárið á henni svolítið rafmagnað. Trikkið var húfa sem er toguð af höfðinu á henni :) Annars er bara tilhlökkun á morgun, en þá kemur Sverrir Úlfur til okkar! Wúha!

GA GA Skorrdal

Hrefna María Jónsdóttir
Hrefna María Jónsdóttir
Við fjölskyldan skelltum okkur á fatasýningu GA GA Skorrdal á föstudags eftirmiðdaginn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Magnaður fatnaður þarna á ferð, meira fyrir konurnar, en.....mér fannst konurnar ansi smart í þessum fatnaði, þær voru eins og Ronja Ræningjadóttir í huganum eða konur úr Lord of the rings. Hrefna mátaði nokkrar húfur, og mér finnst frábært að mynda hana, ljósið fellur svo fallega á andlit hennar. Tók þessa af Hrefnu með húfuna sem hún eignaðist eftir þessa sýningu. Eingöngu var notað ljós af staðnum við tökuna, ekkert flass. Hér er svo albúm frá þessu.