Valmynd Spurningin
Syrpur Athugasemdir

Flateyri könnuđ

Hress Flateyringur
Hress Flateyringur
« 1 af 2 »
Áfram örkum við Matt í blíðunni hérna fyrir vestan. Héldum á Flateyri í gær til að mynda bæinn og það fólk sem við rákumst á þar. Börnin sem við hittum voru einstaklega lífleg og skemmtileg. Þeim fannst kallarnir með myndavélarnar einhvað sniðugir. Frábær ferð í alla staði og má segja að við séum búnir að mynda ansi mikið félagarnir síðan á sunnudag :)

Myndaalbúm.

Frussusnjórinn mćttur.

Vestri í kárabyl
Vestri í kárabyl
Það var allt frussandi í snjó í gær. Fólk var sent heim úr vinnu vegna snjóflóðahættu og vegir lokuðust. Kózýstund hjá flestum heima, en við Matt skelltum okkur í nokkra göngutúra og virtum fyrir okkur skúlptúra náttúrunnar. Æðisgengið alveg!

Kári Jóh: Kærar þakkir fyrir lúðuna og humarinn, þetta sló í gegn:)

Myndaalbúm.