Andlát mömmu minnar.
Edel Einarsson
Foreldrar hennar voru Vigfús Guðmann Einarsson, kaupmaður í Maribo, og Valborg Einarsson ljósmyndari.
Systkini Edel eru Irene, f. 1904, d. 1981, Ingrid, f. 1909, Bjarni, f. 1911, Hildur, f. 1913, d. 23.1. 2003, og Ingibjörg, f. 1917.
Edel giftist 1933 Ágústi Einarssyni, kaupfélagsstjóra í Hallgeirsey og á Hvolsvelli, f. 13.8. 1898, d. 10.9. 1988. Sonur Ágústs frá fyrra hjónabandi var Einar Ágústsson, fv. utanríkisráðherra. Börn Edel og Ágústs eru Ásgeir, fv. skólastjóri í Skælskør, f. 21.1. 1935, Edda, fv. framkvæmdastjóri í Englandi, f. 29.12. 1938, og Atli, vélfræðingur hjá Landsvirkjun, f. 4.4. 1945. Börn Ásgeirs eru Anne Lise, f. 1949, fv. leikskólastjóri, og Kári, f. 1962, skipatæknifræðingur. Börn Eddu eru Ingrið, f. 1962, matvælafræðingur og Helga, f. 1966, skrifstofumaður. Börn Atla eru Ágústa Guðný, f. 1962, skrifstofumaður í Reykjavík, Bjarki Þór, f. 1967, tryggingaráðgjafi í Reykjavík, Ágúst Guðmundur, f. 1972, margmiðlunarhönnuður og ljósmyndari á Ísafirði og Atli Geir, f. 1975, deildarstjóri í Kópavogi.
Edel ólst upp í Maribo á Lálandi, á eyjunni Endelave í Kattegat, þar sem faðir hennar keypti og rak herragarð, og síðan í Bramming þar sem hann rak nýlenduverslun og Edel vann þar nokkur ár án launa til að hjálpa pabba sínum við að komast á réttan kjöl aftur en hann hafði farið illa út úr búskapnum á Endelave. Síðan fór Edel í hjúkrunarnám á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn og að því loknu fór hún ásamt systur sinni Hildi til Íslands 1932. Þar vann hún um tíma hjá sýslumanni á Hvolsvelli og við hjúkrun í Reykjavík þar til hún hóf búskap á Hvolsvelli með Ágústi manni sínum. Af heilsufarsástæðum hjá Edel flutti fjölskyldan til Danmerkur 1946 og bjó þar í 13 ár þar til hún fluttist til Vestmannaeyja 1959 þar sem hún vann um tíma í fiskvinnslu og síðan til Reykjavíkur þar sem Edel og Ágúst unnu í Samvinnubankanum síðustu starfsárin, hann sem húsvörður og hún við ýmis þjónustustörf. Þegar Edel og Ágúst komust á eftirlaunaaldur 1970 fluttust þau aftur til Danmerkur, fyrst til Korsør og síðan til Skælskør en þar bjó Edel til dauðadags. Lengst af, eða þangað til hún var 102 ára, bjó hún ein í íbúð fyrir aldraða en síðasta árið bjó hún á hjúkrunarheimilinu í Skælskør þar sem Valborg, mamma hennar, og Ágúst, eiginmaður hennar, dvöldust á árum áður og Edel labbaði í mörg ár frá heimili sínu til þeirra á Skælskør plejecenter til að sinna þeim og létta þeim síðustu æviárin.
Útför Edel fer fram frá Skælskør kirke í Danmörku í dag, 27. nóvember 2010, og hefst athöfnin kl. 11.
Denne artikel skrev jeg i Morgenbladet på Island og her kommer den danske udgave:
Edel blev födt i Slagelse den 13,juni 1907. Hun sov stille ind den 18 november 2010. Hendes forældre var Vigfús Guðmann Einarsson, köbmand i Bramminge og Valborg Einarsson, fotograf.
Edels söskene er Irene, f.1904, d. 1981, Ingrid, f. 1909, Bjari Erik, f. 1911, Hildur, f. 1913, d, 2003 og Ingibjörg, f. 1917.
Edel blev i 1933 gift med Ágúst Einarsson, forretningsbestyrer i Hvolsvelli på Islands sydkyst , f. 13.08.1998, d. 10.09.1988. Ágústs sön fra forrige ægteskab var Einar Ágústsson fv. udenrigsminister på Island. Edel og Ágústs börn er: Ásgeir fv. viceskoleinspektör i Skælskör f. 21.01.1935, Edda, fv. direktör i England, f. 29.12.1938 og Atli maskinchef i Kopavogi, f.04.04.1945.
Ásgeirs börn er Anne Lise, fv.pædagog i Skælskör, f.1949 og Kåre, skibsinginör, f. 1962 . Eddas börn er Ingrid, uddannelseskonsulent f. 1962 og Helga, international mobilitetkonsulent f. 1966. Atlis börn er, Ágústa Guðný, kontordame, f. 1962, Bjarki Þór,forsikringskonsulent f, 1967, Ágúst Guðmundur, multimediedesigner og fotograf, f. 1972 og Atli Geir, afdelingschef, f. 1975.
Edel voksede op i Maribo, på Endelave, hvor hendes forældre ejede en herregård, og i Bramminge hvor Edel arbejdede uden lön et par år for at hjælpe sin far at komme ovenpå igen for der havde været ökonomiske problemer med herregården på Endelave. Edel blev uddannet som sygeplejerske fra Rigshospitalet og i 1932 rejste hun sammen med sin söster Hildur til Island for at se sin fars hjemland. Der arbejde hun i huset hos sysselmanden i Hvolsvelli og som sygeplejerske i Reykjavik indtil hun stiftede hjem med sin mand Ágúst, i Hvolsvelli.
På grund af Edels dårlige helbred rejste familien til Danmark i 1946 og boede der i 13 år til 1959 da de flyttede til Island igen, til Vestmannaöerne, hvor hun arbejded et tidsrum i fiskefabrikker og siden i Reykjavik hvor hun og Águst arbejdede som viceværter i sönnen Einars bank, Samvinnubankinn.
Da de nåede pensionsalderen flyttede Edel og Ágúst til Danmark igen, först til Korsör og siden til Skælskör hvor Edel boede resten af livet, i Rådmandshaven og det sidste år på Skælskör plejecenter hvor hendes mor Valborg og hendes mand Ágúst boede samtidig og Edel gik i mange år flere km derhen for at besöge dem og lette dem livet.
Edels bisættelse fandt sted fra Skælskör kirke lördag den 27. november 2010.






