Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Skemmtilegt líf

Leirdalurinn
Leirdalurinn
« 1 af 6 »
Nú er haustið að koma og það er svo skemmtilegt. Kórinn minn hóf starfsemi sína á þriðjudaginn og þátttaka góð, enda kórferð til Englands á teikniborðinu hjá okkur. Á efnisskrá fyrir vorið og fyrir Englandsferðina hjá okkur verða aðalega íslensk lög og við erum að huga að jólatónleikum líka.
Dansinn byrjaði hjá okkur í gærkvöldi og við skemmtum okkur frábærlega. Það var gaman að hitta dansfólkið aftur. Sérstaklega fannst okkur gaman að dansa rokksyrpu ( Rock around the clock ofl.) sem spiluð var áður en við fórum heim, geggjað fjör og svitinn lak af manni og gleðin skein úr augum dansfélagans.
Golftímabilið er í fullum gangi ennþá, en dagurinn farinn að styttast og ekki viðrað mjög vel síðustu daga. Það er þó hægt að bæta sveifluna og fleira á æfingasvæðum klúbbana og svo er Hesperia/Alicanteferð á dagskrá í lok mánaðarins. En áður að henni kemur eru ferðir til Færeyja og Helsinki, og er dans, menning, afslöppun og kózýheit efst á blaði í þeim ferðum.
Já, lífið er yndislegt.

Nu er det blevet efterår og det er jo dejligt. Mit kor startede i tirsdags og vi var rigtig mange, måske lidt fordi at vi skal på turné til England til foråret og en spændene sæson forude. Vi øver mest islandske sange og vi skal også øve julesange til vores julekoncert i desember.
Vores danseklub startede i går og vi havde en forrygende aften og det var dejligt at træffe alle de andre dansere igen. Vi nød det særligt at danse til en vild Rock and roll melodi og vi svedte godt nok meget da vi gik hjem og glæden lyste fra min dansepartners øjne.
Golfsæsonen er stadig i gang, men dagen er jo blevet kortere og det har ikke været så godt golfvejr de sidste dage. men vi kan jo øve os på klubbernes træningsbaner og så er der jo ikke så længe til vi skal på golfferie til Spanien i slutningen af oktober. men først skal vi jo til Færøerne og Finland hvor dans, kultur, og at nyde livet står øverst på progammet.
Ja, det er et dejligt liv vi lever
Álit / Min mening:

Þráinn - föstudagur 10 september klukkan 22:49

#1

Er ekki pláss fyrir kórbullur í þessari Englandsferð?

Ágúst Atlason - föstudagur 10 september klukkan 22:52

#2

Það er gott að hafa nóg að gera :)
Takk fyrir símtalið í dag.

Atli Agustsson - föstudagur 10 september klukkan 23:31

#3

Þið komið bara í kórinn aftur elskurnar

Atli Agustsson - föstudagur 10 september klukkan 23:32

#4

Takk sömuleiðis Gústi minn :)

Linda - fimmtudagur 16 september klukkan 21:23

#5

Hey hvar eruð þið í dansi?:=)

Skrifaðu þitt álit / Skriv din mening:












Lízzí,Hrafnhildur og GunnarGunni (vinkona Eddu)Bjarni og hvolpur á SmáratorgiBríet Edel Bjarkadóttirgaman hjá okkur