Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Febrúar »
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Golf, golf og aftur golf.

Lovísa, vinkona Kollu og Kolla á afmćlisdeginum
Lovísa, vinkona Kollu og Kolla á afmćlisdeginum
« 1 af 7 »
Nú hef ég ekki skrifað síðan 11. maí nema á Facebook, en það eru ekki allir í fjölskyldunnu sem eru Facebookvinir og danskir lesendur hvarta sárum.
Kolla hélt upp á stórafmæli sitt þann 15. maí og mættu 65 manns í glæsilega veislu sem hún hélt í sal Sjálfsbjargar í Hátúni. Frábær veisla með góðum mat og fullt af frábærum skemmtiatriðum, bæði utanaðkomandi og frá fjölskyldunni. Meðal annars söng dóttursonurinn, Viktor, fallegt lag til ömmu sinnar, dætur, frænka og systir sungu raddað og ég söng "Spáðu í mig" með frumsömdum texta:
 

Lífið hefur aldrei leikið við mig,

ljúfar‘en það gerir nú í dag.

Hafi sorg og sút mig áður þjakað,

þá snarlega allt komið er í lag.

 

Spáðu í mig þá mun ég spá í þig......

 

Dansinn núna dolfallinn æ stíg ég,

með dásamlega stúlku mér við hlið.

Um gólfin létt og liðug nú við svífum,

ljúf hamingjan mér gefið hefur grið.

 

Spáðu í mig.....

 

Hjólastígar okkar ljúfu borgar,

allir víst þeir bæta vel mitt geð.

Á enda veraldar ég ætla að þjóta,

en bara Kolla, ef þú kemur með.

 

Spáðu í mig.....

 

Um grænar grundir viljugur nú arka,

því golfkennsla nú komin er á kort.

Á eftir minni dásamlegu dömu,

ég dengi mér í ellimannasport.

 

Spáðu í mig.....

 

Ástin ljúf í æðum mínum logar,

og lífið er svo spennandi og breytt.

Af öllu hjarta einlægt þér ég lofa,

Að elska þig í framtíðinni heitt.

 

Spáðu í mig.....


Svo var dansað og skemmt sér fram á nótt.
Golftímabilið hófst um miðjan maí og ég hef verið iðinn við að spila og oftast verið mættur um kl 0645, ýmist einn eða með Kolbrúnu. Eins og gengur er spilið misjafnt og td í gær náði ég að slá 9 holur á 46 höggum, en í morgun á 60!! Er þó kominn með 33,2 í forgjöf !
Það hafa heldur fækkað hjá mér í hjólaferðunum,en ég fór þó eina skemmtilega um daginn, 23 km í góðum félagsskap. Við Kolla hjóluðum með Birgittu, dóttur hennar, og fjölskyldu.
Á laugardaginn ætlar ég að keppa á mínu fyrsta golfmóti. Það er með Texas Scramble fyrirkomulagi þar sem Kolla og ég spilum saman sem lið.

Nu har jeg ikke skrevet her siden den 11. maj. Jeg har dog skrevet på Facebook næsten hver dag, men der jo nogen i den danske afdeling af familien der desværre ikke vil være Facebookvenner og jeg har jo også kun skrevet på islansk.
Kolla holdt en flot fødselsdagsfest den 15. maj og havde 65 gæster. Vi fik lækker mad og der var underholdnig både udefra og fra familien. Blandt andet sang Kollas barnebarn, Viktor, en smuk sang for sin mormor, døtrene Birgitta og Brimrún sang sammen med søsteren Guðrún og niecen Eva og jeg sang en islansk slager med text til Kolla. Den kan læses her på siden i den islanske afdeling. Vi dansede og morede os til langt ud på natten.
Golfsæsonen startede i midten af maj og jeg har været flittig til at spille og mest kl. 0645 om morgenen før jeg tager på arbejde, enten alene eller med Kolbrún. Det er forskelligt hvordan det går, men fremad går det stille og roligt. Jeg er nået ned til handicap 33,2. Jeg har ikke været så flittig til at cykle, men i sidste weekend cyklede vi dog 23 km sammen med Kollas datter og familie.
På lørdag skal jeg spille til min første golftournering til et spil der hedder Texas Scramble hvor Kolla og jeg spiller sammen som hold.

Álit / Min mening:

Brimrún - föstudagur 04 júní klukkan 23:00

#1

Ţetta var ekkert smá skemmtilegt og flott sungiđ hjá ţér í afmćlinu..
Gangi ykkur vel í gólfmótinu..
Svo ţurfum viđ ađ fara hjólaferđ öll saman einhvern tíman. Ţađ vćri gaman.

Atli Agustsson - laugardagur 05 júní klukkan 20:33

#2

Takk fyrir ţađ Brimrún. Já, endilega hjóla öll saman.

Skrifađu ţitt álit / Skriv din mening:












Stofa og svefnherbergiHelga pĺ Island 2003Litla frćnka hjá Stóru frćnkuBríet og vinkonan í heita pottinumHelga pĺ Island 2003