Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Febrúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Frábær Danmerkurferð

Kolbrún við Amalienborgarhöll
Kolbrún við Amalienborgarhöll
« 1 af 25 »
Við lögðum af stað út í Leifsstöð föstudagskvöld, 23. júlí og eftir verslun og snæðingur fór vél okkar í loftið klukkan eitt eftir miðnætti og lenti á slaginu 0600 á Kastrup flugvelli. Eftir nokkra leit fundum við bílaleigubílinn okkar sem var BMW318 glæsivagn.
Ókum fyrst til Helgu frænku minnar með viðkomu í bakaríinu. Helga á hús í næsta nágrenni við flugvöllinn og við sváfum til hádegis eftir að hafa fengið morgunkaffi og spjallað við heimilisfólkið.
Sonur Helgu, Marcus, keyrði okkur eftir hádegið inn á Amalienborg, það sem Magga drottning býr, og þaðan löbbuðum við í yndislegu veðri í Nýhöfnina, Strikið og í Tívolí. Það voru mikil vonbrigði hjá Kollu að henni tókst ekki að koma mér upp í "Himmelskibet" sem er nýjasta tækið í garðinum. Mér tókst hinsvegar að koma henni með mér í gamla góða rússibanann, en það vakti ekki mikla hrifningu hjá Kollu sem fannst tækið hið mesta skröltandi skrapatól. En við áttum yndislegan dag í þessum fallega gamla skemmtigarði.
Á sunnudeginum ókum við til Hedeland í nágrenni hestabúgarðs Susan þar sem ég vann í fyrrasumar, og fórum í 18 holu golfhring þar á ágætis golfvelli sem var þó mikill boltaþjófur og við gátum ekki klárað 18. holu vegna boltaleysis. Ókum síðan niður í Hróarskeduhöfn og borðuðum ís og skoðuðum mannlífið sem var fjölskrúðlegt.
Mánudagsmorgum fórum við til Frederiksund til að hitta Leif, æskufélaga minn, sem ég hef aðeins hitt þrívegis síðan 1959 eða í rúmlega hálfa öld. Með honum og konu hans Åse spiluðum við 18 holur á skemmtilegum velli og síðan buðu þau okkur í sumarbústað þeirra, sem er í aðeins 10 min akstri frá golfvellinum, þar sem við "hugguðum" okkur á danska vísu og snæddum þríréttaðan mat og fórum í gönguferð með hundinn þeirra.
Á þríðjudeginum fórum við til Hellerup að heimsækja Ingrid, dóttur Eddu, og nýja kærastanum hennar Vincent og síðan til Skælskør og dvöldum þar í góðu yfirlæti hjá Ásgeiri bróður og konu hans Úllu. heimsóttum móður mína og fórum með hana í ökuferð út á strönd. út í skóg og skoðuðum Borreby slot sem er í nágrenni sólskínsbæjarins. Fórum líka í siglingu á báti Ásgeirs, stukkum í sjóinn og sigldum út í Agersø og drukkum kaffi og borðuðum ís.
Fimmtudagsmorgum keyrðum við yfir Stórabeltisbrú og ókum til Svendborgar og Tåsinge. Svo yfir Littlabeltið og til Vejle, þar sem við fundum golfklúbb þar sem Kolla spilaði fyrir nokkrum árum, og svo áfram til Randers á Jótlandi þar sem við spiluðum golf með Sissu og Óla og gistum hjá þeim um nóttina.Skemmtilegur dagur.
Tókum það rólega föstudagsmorgun með Sissu og Óla og lögðum af stað frá þeim um ellefu leytið og komum við í Skælskør á leið okkar til Kaupmannahafnar. Ég var búinn að steingleyma að ég ætlaði að elda lambalæri handa heimilisfólkinu hjá Helgu en slapp fyrir horn því að Helga kom seint heim og við borðuðum gómsæta lambasteik klukkan 1930.
Laugardagsmorgun fórum við í verslunarleiðangur með Per í Fields í ørestad og eftir hádegið fórum við í 33 km hjólaferð um Amager og út í Dragør sem er skemmtilegur, fallegur lítill bær í nágrenni Kastrup. Per eldaði "Hakkebøf med løg" handa okkur í kvöldmat og síðan fórum við að skila bílnum og í kvöldflug heim til Íslands og vorum komin heim í Huldubrautina klukkan eitt eftir miðnætti. Yndisleg ferð á enda og kærar þakkir til ykkar allra í Danmörku sem gerði ferðina svona skemmtilega með okkur.

Vi kørte hjemmefra fredag aften den 23.07 og vores fly afgik fra Keflavik klokken 0100 og landede i Kastrup klokken 0600. Vi lejede en flot BMW318 og kørte først til bageren og købte morgenbrød til familien på Gyldenvang Allé og drak morgenkaffe med dem før vi gik i seng og sov til ved middagstid.
Marcus kørte os til Amalienborg og derfra gik vi til Nyhavn, gennem Strøget til Rådhuspladsen og i Tivoli. Det var en skuffelse for Kolla at hun kunne ikke få mig op i "Himmelskibet", men til gengæld fik jeg hende med i den gamle rushebane som hun ikke var særlig begejstret for. Men vi havde en vidunderlig dag i den gamle smukke have.
Om søndagen fandt vi en smuk 18 hullers golfbane i Hedeland, der ligger lige i nærheden af Susans gård hvor jeg arbejdede sidste år. Der gik dog så mange bolde tabt at vi kunne ikke spille bane 18 færdig. Efter golf kørte vi til Roskilde havn og spiste is og spadserede i det dejlige vejr.
Mandag morgen kørte vi til Frederiksund hvor vi spillede Golf med min barndomskammerat, Leif, og hans kone Åse. Leif og jeg har kun set hinanden 3 gange de sidste 51 år. Det var en rigtig dejlig dag og vi spiste 3 retters dejlig mad i deres sommerhus der ligger kun 10 min. kørsel fra golfklubben.
Tirsdag morgen kørte vi til Hellerup og drak formiddagskaffe hos Ingrid, på altanen i hendes hyggelige lejlighed, og hendes nye ven Vincent og vi gik en lille tur sammen med dem.
Vi kørte videre til Skælskør hvor vi havde nogle dejlige dage sammen med min mor, Ásgeir og Ulla. Vi var på sejltur med Ásgeir og Ulla, svømmede i havet, drak kaffe og spiste is i Agersø. Vi fik også min mor med ud at køre en lille tur til stranden, i skoven og til Borreby slot.
Torsdag morgen kørte vi over Storebæltsbroen, til Svendborg ig Tåsinge og videre over Lillebælt til Vejle hvor vi fandt en golfklub hvor Kolla spillede for et par år siden. Vi kom til Randers ved tretiden og der spillede vi golf med Sissa og Óli og spiste aftensmad og overnattede hos dem.
Fredag formiddag kørte vi tilbage til Skælskør igen for at sige farvel og så videre til Kastrup hvor jeg lavede aftensmad til familien og os, lækker lammesteg.
Lørdag formiddag var vi ude at handle i Fields med Per og om eftermiddagen cyklede vi en dejlig 33 km cykletur på Amager og til den søde lille by Dragør. Per lavede hakkebøf med løg til aftensmad og klokken 2030 var vi i Kastrup lufthavn hvorfra vi lettede klokken 2230 dansk tid. Efter 3 timers behagelig flyvetur landede vi i Keflavik og var hjemme hos os selv ved ettiden, isl. tid efter en vidunderlig ferie vi sent glemmer. Tak til jeg alle i Danmark der hjalp os med at gøre den så dejlig.

Skrifaðu þitt álit / Skriv din mening:












Bríet fimleikastelpaBjarki AtlasonGestaherbergiÁsa GuðnadóttirEr ég ekki yndisleg. / Er jeg ikke dejlig