Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Dansferð til Færeyja/En dansturné til Færøerne

lent í Færeyjum
lent í Færeyjum
« 1 af 11 »

Þá erum við komin heim úr glæsilegri  dans og skemmtiferð til Færeyja og nokkrir vinnudagar framundan þangað til að ný ævintýri taka við um næstu helgi þegar við heimsækjum Ísafjörð. Ferðin hófst á Reykjavíkurflugvelli á föstudaginn og eftir 80 mín. flug lentum við á Vágar Floghavn í 12 vindstigum.

Rúta flutti okkur á Hotel Streym en þar beið formaður Félags heilaskaðaðra eftir Kollu og þau fóru saman á fund með stjórninni.

Um kvöldið fórum við að dansa í glæsilegu húsi Kom og dans, Dansefrøet, en þar er dansgólfið um 300 m2 . Ótrúlegt að færeyska dansfólkið ráði við að reisa og reka svona mikið og glæsilegt hús.

Laugardagsmorgun fórum við í gönguferð um Tórshavn í ágætu veðri og eftir hádegið tókum við þátt í dansnámskeiði með færeyska dansfólkinu og um kvöldið var haldin glæsileg veisla okkur til heiðurs með skemmtiatriðum, ræðuhöldum, samsöng, hlaðborði og dans með lifandi tónlist.

Á sunnudeginum fórum við í skoðunarferð um Streymoy og Eysturoy undir leiðsögn konu sem er skólastjóri í Tórshavn og virkur þátttakandi í danslífinu. Frábær, fræðandi og skemmtileg ferð. Svo var haldið kveðjusamsæti fyrir okkur með súpu, brauði og kaffi í I.O.G.T um kvöldið og kveðjudansinn stíginn.

Mánudagsmorgun kvöddum við Tórshavn og héldum áleiðis til Vestmanna þar sem við skoðuðum sögusafnið og fórum í bátsferð út í Vestmannabjörgin. Upplifðum líka að fylgjast með hvalavöðu sem kom inn til Vestmanna og uppi var fótur og fit í plássinu og allir sem vettlingi gátu valdið tóku þátt í grindardrápinu.

Þessi góða og skemmtilega ferð endaði svo á Reykjavíkurflugvelli kl 1610 eftir þægilega flugferð frá Vágar Floghavn.

 

Så er vi hjemme igen efter en spændende og morsom tur til Færøerne og nu skal vi arbejde  et par dage før vi skal opleve nye eventyr igen i næste weekend hvor vi tager en tur til Isafjord.

Vores tur startede fra Reykjavik lufthavn i fredags og efter en 80 min flyvetur landede vi i Vágar Floghavn i vindstyrke 12 ! Der ventede os en bus der kørte os til Hotel Streym i Tórshavn hvor Bjarne, fra Foreningen for hjerneskadede, ventede på Kolla for at tage hende med til et møde med bestyrelsen.

Om aftenen dansede vi i Kom og dans foreningens flotte forsamlngshus, Dansefrøet, hvor der er et 300 m2 dansegulv. Det er utroligt at danserne i Tórshavn kan klare at bygge og holde  så stort og flot et hus.

Lørdag morgen gik vi en lang tur i Tórshavn i smukt vejr og om eftermiddagen var vi til dansekursus i Dansefrøet med de færøske dansere og om aftenen holdt de galafest for os med optræden, færøsk dans, fællessang taler, lækker mad og dans til levende musik til lagt ud på natten.

Om søndagen var vi på udflugt og kørte rundt om Streymoy og Eysteroy og vi så mange smukke og interessante steder. En af danserne, en kvindelig skoleinspektør, var guide og det var en stor oplevelse at se og høre om Færøerne og deres befolkning. Om aftenen blev der holdt afskedsfest for os med suppe, brød og kaffe og vi dansede et par timer før vi gik hjem til vores hotel  igen.

Mandag morgen sagde vi farvel til Tórshavn og køte til Vestmanna hvor vi så deres flotte historiske museum og vi var på en to timers sejltur ud til de storslåede Vestmannabjørg og der så vi også færingerne jagte grind.

Vores dejlige tur endte i Reykjaviks lufthavn klokken 1610 efter en behagelig flyvetur fra Vágar Floghavn.

 

Skrifaðu þitt álit / Skriv din mening:












gaman hjá okkurLinda, Litla, Bríet og ÁsaHelga på Island 2003Bjarni og Filipus