Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Danmerkurferð fjölskyldunar

Ágústa og Bjarki
Ágústa og Bjarki
« 1 af 10 »
Ágúst minn kom með flugi frá Ísafirði á fimmtudaginn í síðustu viku. Snemma föstudagsmorgun komu Ágústa og Bjarki á Huldubrautina og við sóttum Atla í Laugalind og vorum komin í Leifsstöð klukkan 0600. Flugið til Kaupmannahafnar gekk vel og við lentum í Kastrup á tilsettum tíma um hádesbilið. Ég var búinn að panta bílaleigubíl hjá Hertz og við fengum fínan Ford Focus station. Ágústa, Kolla og ég komum okkur fyrir hjá Helgu frænku og bræðurnir 3, Bjarki, Ágúst og Atli Geir fóru til Bjarka og Gunnsu, vinafólk Bjarka míns, í Dragør.
Um kvöldið fórum við svo öll út að borða í Bøfhúsi Jensens á Vesterbrogade ásamt Eddu, Helgu, Ingrid, Per, Marcus,Torben, Helle, Susan, og Carsten. Sumir fóru  í leikhús á eftir og í Tivoli en við tókum að okkur að koma Mözduna heim í Gyldenvang Allé.
Veðurguðirnir voru okkur ekki mjög hliðhollir og við lögðum af stað til Skælskør í fljúgandi hálku upp úr kl. átta en færðin lagaðist þegar við nálguðumst Skælskør þar sem útför mömmu hófst klukkan ellefu. Athöfnin var mjög falleg og við vorum 30 sem kvöddum mömmu í fallegu gömlu kirkjunni og að því loknu var haldin erfðadrykkja í Postgården. Þó að tilefnið væri sorglegt var afskaplega gaman að hittast svona mörg úr fjölskyldunni og við fengum afbragðs veitingar.
Um kvöldið fórum við í stræó inn í miðbæ og  börnin buðu okkur Kollu í mat í Tivoli og við röltum um gamla fallega garðinn nokkra klukkustundir.
Á sunnudeginum fórum við í Fields að versla, síðan fór Ágústa á Strikið, henni fannst það "must" þegar Kaupmannahöfn er heimsótt. Við hin hittumst í Dragør þar sem við löbbuðum um í þessum fallega smábæ og Ágúst mundaði "Canoninn" eins og honum einum er lagið. Við litum líka við í dótabúðunum.
Um kvöldið bauð svo Helga stórfjölskyldunni í flæskesteg og heimabakað með ís. Ásgeir og Ulla komu frá Skælskør og Ingrid og Vincent ásamt Wimsy og Gunný sem mættu líka. þetta var frábært kvöld, maturinn æðislegur og það var farið í pool í kjallaranum.
Mánudagsmorgun var allt í uppnámi á Kastrup flugvelli vegna veðurs og fjölda flugferða aflýst eða frestað. Kolla, Ágústa, Bjarki og Atli Geir komust þó af stað eftir ca klst. seinkun. Ágúst og ég áttun skemmtilegn dag í Fields og á æskuslóðum mínum á Vesterbro þar sem ég sýndi honum vesterbrogade 139 þar sem við fjölskyldan bjó frá 1952 til 1959. Við fórum líka í Søndermarken og tókummyndir af indiánagilinu og sleðabrekkunum þar sem ég renndi mér sem barn.
Við Ágúst lentum svo á Huldubrautinni rétt fyrir miðnætti.

Min søn Águst kom med fly fra Isafjord om torsdagen i sidste uge. Tidlig fredag morgen kom Ágústa og Bjarki til Huldubraut og vi hentede Atli Geir i Laugalind paa vejen til Keflavik hvor vi lettede fra klokken 0800. Efter en god flyvetur landede vi i Kastrup ved middagstid og vi hentede udlejningsvognen, en Ford Focus diesel, som jeg havde bestilt. Jeg kørte først til Gyldenvang Alle med Kolla og Águsta og siden med drengene til Dragør hvor de skulle bo hos nogl af Bjarkis venner.
Om aftenen var vi paa Jensens bøfhus sammen med Helga, Per, Marcus, Helle, Susan, Carsten, Ingrid og Edda. Det var rigtig hyggeligt. Nogle gik i Tivoli bagefter, men drengene og jeg paatog os at køre Helga og Pers bil til Amager og Kolla og Ágústa tog toget.
Vejrguderne var ikke særlig venlige mod os og vi kørte i glat føre fra København tidligt lørdag morgen mod Skælskør. Mors bisættelse startede klokken 1100 i den smukke gamle kirke og var rigtig smuk og højtidelig og vi var ca 30 paarørene og bagefter havde vi nogle hyggelige timer sammen paa Postgaarden hvor vi fik smørebrød, øl og vand, kaffe og wienerbrød.
Om aftenen inviterede mine börn os til at spise i Hersegovenia i Tivoli og vi gik rundt et par timer i den smukke julepyntede have. Söndag var vi i Fields at handle og Ágústa tog Metroen til centrum for hun synes ikke at hun kunne bsöge Danmark uden at gå ind på Ströget. Vi andre körte til Dragör hvor vi gik en tur i den lille hyggelige by og Águst sköd med sin Canon 5D og vi kiggede i butikker.
Da vi kom hjem havde Helga og Per forberedt flæskestegsfest og den var fantastisk flot. Flæskestegensmagte vidundeligt og jeg spiste alt for meget. Der var også dessert, hjemmebagt kage og is. Der blev spist 6 kg köd, to slags kartofler, rödkål og brokkoli. Vi havde en dejlig aften sammen med: Helga, Per, Marcus, Edda, Gunni, Wimsy, Ingrid, og Vincent foruden os 6, Kolbrun, Ágústa, Bjarki, Ágúst, Atli Geir og jeg. Tusind tak kære Helga og Per, i er fantastiske, söde og gæstfri

Skrifaðu þitt álit / Skriv din mening:












ForstofaÍris søster, GuðnýBríet Edel BjarkadóttirAfmælisbarnið Svava og Harpa systirKátar meyjar úr villta vestrinu