7. september 2007
Skrifað þann 7. september 2007
Þá er fyrsta vinnuvikan liðin og ekkert sérstakt hefur komið upp. Prófun véla hjá mér sem átti að framkvæma í gær var frestað um 2 vikur vegna manneklu í deildinni hjá mér.
Eftir vinnu í gær var ég á fundi með Keith kórstjóra og stjórn kórsins. Að vanda er Keith stórhuga og spennandi verkefni eru framundan hjá okkur í kórnum, meira um það seinna.
Í dag fór ég að sækja vörur fyrir Bjarka í Rekstrarvörur og síðan hjólaði ég niður í Örnin og keypti mér draumahjólið. Það er með vökva-diskabremsur, mjög vandaða gíra, stillanlegum dempara og aðeins um 12 kg á þyngd. Ég lét útbúa hjólið með bretti, bögglabera, lás og bjöllu og fékk mér nýjan hjálm, gulan og svartan, í stíl við hjólið að sjálfsögðu. Svo verð ég líklega að fá mér gulan/svartan stakk líka!
Svo heimsótti ég Öldu, Bjarka og Atla Geir og borðaði hjá Eddu, Atla og Kötu. gaman að sjá þau aftur. Svo fór ég líka í Bónus að versla og borðaði svo siðbúinn kvöldmat (föstudagskjulla auðvitað og án meðlætis eins og Lindu datt í hug).
Så er den förste arbejdsuge gået uden at der skete noget særligt. Prövekörselen af mine turbiner blev udsat på grund af mangel på mandskab i min afdeling. Jeg plejer jo altid at få to af mine arbejdskammerater på besög for at de også kan få træning i at starte maskinerne.