Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

7. október 2007

Atli geir og Kata
Atli geir og Kata
« 1 af 7 »
Það var fallegt að vakna í morgun og að njóta stórkostlegu útsýninu af 3.hæð í Álfkonuhvarfinu. Eftir lýsi, hafragraut kaffi og hádegisfréttir var lagt af stað á hjólinu góða og stefnan tekin á Gróttu á Seltjarnarnesi og þaðan niður í miðbæ og síðan meðfram Sæbraut og til Atla, Eddu og Kötu í Njörfasundi.
Þar var boðið upp á kaffi og pönnukökur sem Edda og Bjarney Kata bökuðu á meðan við Atli Geir horfðum á Liverpool gera 2-2 jafntefli við Tottenham. það munaði litlu að þeir síðarnefndu hefðu farið með sigur af hólmi og voru taugar sonar mins þandar til hið ytrasta þangað til að Torres, hinn spánski, jafnaði metin á síðustu stundu.
Atli Geir er ristarbrotinn ( eftir fótboltaleik)
Svo hjólaði ég upp í Grafarvog, Grafarholt, Árbæjarhverfi og um Elliðavatn. Haustlitirnir eru ótrúlega fallegir um þessar mundir og það var yndislegt að hjóla þessar 45 km í dag.

Det var smukt at vågne i morges og nyde den flotte udsigt fra 3.sal hos Elvekonerne. Da jeg havde indtaget levertran, havregröd og kaffe og lyttet til radioavisen cyklede jeg vestpå og satte kursen mod fyrtårnet Grótta og derfra ned til centrum og endte hos min sön Atli Geir.
Der blev budt på kaffe og pandekager som Edda og Kata bagte mens Atli og jeg så Liverpool spille 2-2 uafgjordt mod Tottenham Hotspurs. Det var lige ved at gå galt for Liverpool og det var strengt for Atli Geirs nerver indtil  spanjoleren Torres udlignede for Liverpool lige för kampen blev flöjtet af.
Atli Geir har et brud på sin höjre rist (efter en fodboldkamp).
Jeg cyklede vider östpå og det var så smukt at cykle i det flotte vejr og se de smukke efteråesfarver. Dagens cykleresultat lyder på 45 km.
Álit / Min mening:

Linda - mánudagur 08 október klukkan 00:26

#1

Takk fyrir mig afi minn, ég er búin að finna mér peysu fyrir peninginn, ekki lengi að þessu frekar en venjulega:) Og frábærar myndir sem þú tókst í dag en ég var líka að taka nokkrar haustmyndir. Ég, þú og mamma ættum kannski að skella okkur á ljósmyndanámskeið???

Skrifaðu þitt álit / Skriv din mening:












Sæta KødsuppefestenFjörið í hámarkiMálverkasýning Hrafnhildar