Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

7. september 2008

Veisla undir Lómagnúpi/Fest ved Lómgnúp
Veisla undir Lómagnúpi/Fest ved Lómgnúp
« 1 af 10 »

Ég átti frábæran dag í gær. Í morgunsárið lagði ég af stað til Þórunnar frænku í Garðabæ. Þar var boðið upp á morgunkaffi og við undirbjuggum ferðina austur að Kirkjubæjarklaustri að heimsækja Bjarna frænda. Sóttum svo Þórdísi frænku upp í Dalland og við lögðum af stað austur á Land Cruiser Þórdísar klukkan 1100.
Komum við á Selfossi og keyptum konfekt handa Bjarna og síðan á Hvolsvelli að fá okkur samloku. Renndum í hlað hjá Bjarna um tvö leytið og var ekki annað að sjá en að karlinn var ánægður að sjá okkur því hann ljómaði allur og  lítur mjög vel út, hefur fitnað og var sólbrúnn og sællegur. Héldum síðan áfram austur að Lómagnúp þar sem við slógum upp veislu fyrir Bjarn og buðum upp á brauð með reyktum ál og Bjarnabrugg bjór sem ég keypti í Danmörku um daginn. Þórunn var búin að gera eggjahlaup og kaupa brauð og grænmeti.
Síðan ókum við alla leið austur að Jökulárlóni í fögru veðri og náttúran og litadýrðin var stórkostleg. Drukkum kakó hjá Lóninu og síðan kaffi og brauð í Freysnesi. Áður en við komum í Vík stoppuðum við við Laufskálavörðu og borðuðum bláber sem Þórdís hafði tínt að Dallandi daginn áður. Við vorum komin að Dallandi um 11 leytið og ég keyrði Þórunni heim aftur og var kominn heim til mín um miðnætti. Stórkostlegur dagur þar sem ég keyrði 800 km og fann ekki fyrir því, enda félagsskapurinn frábær.


Jeg havde en vidunderlig dag i går. Da jeg havde spist morgenmad kørte jeg til hjem til min kusine Þórunn i Garðabæ hvor jeg drak morgenkaffe sammen med hendes mand Snolli. Vi forberedte vores tur østpå til Kirkjubæjarklaustur hvor vi skulle besøge onkel Bjarni. Vi hentede min anden kusine, Þórdís, på hendes hestefarm, Dalland, og kørte videre i Þórdís flotte Land Cruiser.

Vores først stoppested var i Selfoss hvor vi købte konfekt til Bjarni og videre kørte vi til Hvolsvöllur hvor vi tankede op og spiste sandwich. Vi ankom til Bjarni ved totiden og han blev rigtig glad for at se os tror og håber jeg da. Han så ihvertfald glad ud, strålede som solen, havde taget lidt på siden jeg så ham sidst og var solbrændt. Vi kørte alle længere østpå til fjeldet Lómagnúpur hvor vi stillede stole og bord frem og holdt en lille fest for Bjarni hvor han fik de to ting han elsker, røget ål og Bjørnebryg fra Harboe i Skælskør. Þórunn havde lavet æggekage og købt grønsager.
Vi kørte videre østpå til Jökulárlón og så de flotte isbjerge i et fantastisk smukt vejr. Vi drak kakao derude og på hjemvejen drak vi kaffe  i Freysnes og spiste blåbær fra Þórdís ved Laufskálavörðu. Vi var hos Þórdís i Dalland ved ellevetiden og jeg kørte Þórunn til Garðabæ igen og var selv hjemme ved midnatstid. Da havde jeg kørt 800 km, men det var dejligt og det var jo nogle vidunderlige rejsekammerater jeg havde.

Skrifaðu þitt álit / Skriv din mening:












Málverkasýning HrafnhildarMálverkasýning HrafnhildarBjarki, Ása, ömmustelpan, amma og HarpaAnne LiseBaðherbergi