Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

5. júní 2007

Góða ferð heim Sigga mín. /Kom godt hjem kære Sigga
Góða ferð heim Sigga mín. /Kom godt hjem kære Sigga
« 1 af 7 »
Slakað á og sofið út í morgun, farið á fætur klukkan 1100. Hvað segirðu um það Linda mín? Per var svo sætur í sér að hann fór í bakaríið og sótti nýbökuð rúnstykki handa okkur. Sólin var komin á loft og við nutum góða veðursins í yndislega garðinum hjá Helgu og Per, lékum við Peter og hundana tvo og slógum bolta. Gestgjafar okkar voru önnum kafin við garðvinnu og lagfæringar.

Síðan fengum við lánuð hjól helgu og Per og hjóluðum út í Amager Fælledpark, gegnum hann allan og þaðan til Dragör þar sem við skoðuðum fallegu húsin og fengum okkur gómsætt brauð með lax og rækjum. Þetta var svo síðasta hjólaferð okkar Siggu að þessu sinni og var hann upp á ca. 30 km.
Þegar við komum heim keyrðum við Helgu og Per í danstíma, þau lánuðu okkur bílinn og svo þurfti Sigga að fara að pakka niður og þá var kveðjustund okkar Siggu runnin upp. Ég keyrði hana út á Kastrup flugvöll klukkan 1930. Kærar þakkir fyrir frábæra ferð og félagsskap Sigga.
Sótti svo Helgu og Per aftur úr danstíma og við komum við á heimleiðinni og keyptum okkur tilbúin mat.

Vi tog det stille og roligt i morges og stod ikke op för ved elleve tiden. Per var så söd og köbte morgenbröd hos bageren. Solen skinnede og vi nöd det gode vejr i Helga og Pers dejlige have. Vi legede med peter og hundene. Husejerne havde travlt med havearbejde.
Senere lånte vi deres cykler og cyklede ud til Amager Fælled og derfra til Dragör hvor vi kiggede på de smukke gamle huse og spiste smörebröd med laks og rejer. Det var vores sidste cykletur i denne omgang og den var på 30 km.
Da vi kom til Gyldenvang Allé igen körte vi Helga og Per til dans og de lånte os deres dejlige Mazda 6. Sigga pakkede kuffert og jeg körte hende til Kastrup klokken 1930 hvor vi tog afsked med hinanden. Tak for en dejlig ferie sammen kære Sigga.
Fra Kastrup körte jeg til Frederiksberg igen og hented Helga og Per og på hjemvejen köbte vi mad som vi tog med hjem.
Álit / Min mening:

Linda - þriðjudagur 05 júní klukkan 23:12

#1

Til 11:00! Þ'u lýgur því nú afi gamli;) Það er ekki fræðilegur möguleiki að þú getir sofið til ellefu hahaha...góðar kveðjur út Hvarfinu:)

Skrifaðu þitt álit / Skriv din mening:












Atli og HelgaÞórunn frá Sámstöðum