Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Żmsir tenglar

« 2012 »
« Maķ »
S M Ž M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

4. febrśar

Vinter i Ellišaįrdal / Vetarvešur ķ Ellišaįrdalnum
Vinter i Ellišaįrdal / Vetarvešur ķ Ellišaįrdalnum
« 1 af 1 »

Á föstudaginn gekk ég frá kaupsamningi vegna íbúðar í Álfkonuhvarfi. Ég fæ hana afhenta 14, mars. Fengum okkur svo KFC um kvöldið.
Hefðbundinn laugardagur með fund í Bústaðarkirkju, beikon og egg, og hjólaferð með tilheyrandi heimsóknum. Hjólaði í stífum mótvindi upp Elliðaárdalinn upp að Elliðavatni og síðan niður í bæ og til Atla og Eddu. Atli er að smá skána í bakinu en gengur þó hægt. Hann fer í segulómskoðun á morgun og í læknaviðtal á þriðjudaginn og fær vonandi góðar fréttir þá um að þetta sé á réttri leið. Aron Viðar var hjá pabba sínum og Eddu og var mjög upptekinn í tölvuleik og Bjarney Kata var steinsofandi.
Atli og Edda fara á árshátíð í Dublin með vinnunni hjá Eddu og til Kaupmannahafnar með Atla vinnu. Þegar þau minntust á Dublin fór ég að hugsa um gamla daga þegar ég var að sigla á M/S Lagarfossi og við fluttum frýstan fisk frá Íslandi til Evrópu og Bandaríkjana, nautakjöt frá Írlandi til Bandaríkjana og kjúklinga frá Ameríku til Rotterdam í Hollandi.
Eitt skiptið þegar við vorum í Dublin, þar sem var oft stoppað lengi, ákváðu strákarnir að skella sér á tónleika hjá einhverri nýrri hljómsveit sem var víst að vinna sér til frægðar. Þetta var sennilega 1961 eða 1963, því samkvæmt sjóferðabók var ég á Lagarfossi bæði árin.
Ég hafði hinsvegar meiri áhuga á að sækja öldurhús heim með þeim eldri úr áhöfninni, og gerði það, en hef oft iðrast þess síðan. Í ljós kom nefnilega að þessi nýja hljómsveit hét The Beatles og þarf þá ekki nánari skýringa við um mín vonbrigði.
En svona var það, Bakkus freistaði mín strax svona mikið í þá daga.


Í fredags skrev jeg under på kontrakten til den nye lejlighed jeg har köbt i Kópavogi og jeg overtager den 14. mars.
Lördagen gik som sædvanlig med möde, bacon og æg, cykletur og besög hos mine börn. Jeg cyklede i stiv modvind op ad Elliðaárdalen op til den smukke Elliðasö og derefter ned til byen igen og til Atli og Edda. Det går lidt fremad med Atlis ryg og i morgen skal han röntgenfotograferes og på tirsdag skal han til læge hvor det afgöres hvad der skal ske. Aron Viðar var hos sin far og Edda, han var meget optaget af computeren og Kata sov.
Atli og Edda skal til årsfester med deres firmaer i Dublin og Köbenhavn. Da vi snakkede om Dublin mindedes jeg gamle dage da jeg sejlede med M/S Lagarfoss med fisk fra Island til Amerika og Europa, okseköd fra Irland til Amerika og kyllinger fra Amerika til Rotterdam i Europa.
Da vi lå ved kaj engang i årene 1961-1963 havde nogle af de yngre besætningsmedlemmer bestemt at tage til koncert hos et nyt bånd der var ved at blive berömt. Jeg havde dog mere interesse for at besöge havneknejperne sammen med nogle af de ældre ombord. Men hvor blev jeg skuffet senere da jeg opdagede at det nye band var The beatles. Behöver jeg at forklare det nærmere? Men sådan er det. Allerede dengang udfordrede Bakkus mig og var en sikker sejrherre.
Įlit / Min mening:

Helga - mįnudagur 05 febrśar klukkan 11:30

#1

hmmm hvor dum kan man vęre.............

Gśsti - mišvikudagur 07 febrśar klukkan 14:44

#2

Til hamingju meš "slottiš" gamli :)

Skrifašu žitt įlit / Skriv din mening:












Stoltur fašir / En stolt farBrķet og vinkonan ķ heita pottinumOliver og oldefar ĮsgeirEinkadóttir mķn, Įgśsta Gušnż