Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

2.í Aðventu 2009

Reynisdrangar við Vík í Myrdal
Reynisdrangar við Vík í Myrdal
« 1 af 20 »
Í dag er nákvæmlega einn mánuður síðan ég skrifaði hér síðast. Ég er orðinn hálfleiður á að skrifa hér enda virðast fáir hafa skoðanir á þessum skrifum mínum miðað við Commentana sem koma og svo er Bloggið sennilega að fara úr tísku og Facebook að taka við.  Ég mundi nota Facebook meira ef það væri ekki út af því að nokkrir fjölskylduvinir erlendis vilja ekki nota þann miðil.
Það sem helst hefur á daga mína drifið er skemmtileg ferð, með Þórdísi frænku og vinkonu hennar Fanný, á Kirkjubæjarklaustur að heimsækja Bjarna frænda fyrir tveim vikum. Við lögðum af stað eftir vinnu á mánudegi og vorum komin austur um kvöldmatarleytið og komum okkur fyrir í orlofshúsi Landsvirkjunar í Efri Vík. Ég sótti Bjarna á Klausturhólum og við borðuðum frábæra kjötsúpu sem þórdís hafði eldað og haft með að heima. Bjarni var mjög hress og við áttum skemmtilega kvöldstund saman.
Á þriðjudeginum sóttum við Bjarna aftur og fórum í rúmlega 200 km bíltúr. Fyrst reyndum við að fara upp í Laka en urðum frá að hverfa vegna vatnavaxta. Þaðan tókum við stefnuna á Núpstaði þar sem við hittum sem fyrr öldunginn Filipus sem varð 100 ára þann 2. desember og ekur ennþá Subaru bifreiðina sína.
Um kvöldið eldaði Þórdís Tælenska fiskisúpu sem var alveg einstaklega gómsæt og enn var Bjarni með okkur og sagði okkur sögur. Ég keyrði svo karlinn heim um níu leytið og við hin dunduðum okkur við prjónaskap og lestur um kvöldið. Við vorum komin aftur til höfuðborgarinnar um hádegisbilið á miðvikudeginum.
Þessa daga er undibúningur í hámarki fyrir jólatónleika Landsvirkjunakórsins sem haldnir verða í Grensáskirkju á miðvikudaginn 9. desember.

I dag er det nøjagtig én måned siden jeg skrev sidst her på siden. Jeg gider ikke rigtig skrive her mere for det lader ikke til at mange læser det jeg skriver. Ihvertfald kommer der ikke mange meninger (Comments) og så er Blogg nok ikke så populært mere nu hvor Facebook er blevet så almindeligt.. Jeg ville bruge Facebook mere hvis det ikke var for nogle familiemedlemmer der ikke vil bruge den.
Det mærkværdigeste der er sket den sidste måned er vel nok en dejlig tur til Kirkjubæjarklaustur hvor min kusine, Þórdís, hendes veninde Fanný og jeg besøgte onkel Bjarni. Jeg havde lejet et sommerhus af mit firma og vi ankom ved sekstiden om aftenen og jeg hentede Bjarni mens pigerne forberedte aftensmaden. Vi fik lækker islandsk kødsuppe som Þórdís havde lavet derhjemme i forvejen. Vi havde en hyggelig aften sammen med Bjarni som fortalte os sjove historier.
Om tirsdagen hentede vi Bjarni igen og vi kørte en lang tur på over 200 km. Først prøvede vi at køre op til Laka hvor der er en masse gamle kratere men vi måtte opgive på grund af floderne på vejen der var for dybe. Det blev så til endnu et besøg til Bjarnis ven Filipus der fyldte 100 år den 2. desember og stadig kører sin Subaru jeep.
Til aftensmad lavede Þórdís lækker Thailandsk fiskesuppe og Bjani spiste med og var glad for at få mad der rigtig smagte af noget. Jeg kørte Bjarni hjem ved nitiden og om aftenen hyggede vi os med at strikke og læse. Vi var i Reykjavik igen ved middagstid om onsdagen.
Disse dage har vi travlt med at forberede mit kors julekoncert som vi holder på onsdag den 9. desember.
Álit / Min mening:

Þráinn - sunnudagur 06 desember klukkan 14:31

#1

Ég fylgist nú nokkuð reglulega með blogginu þínu félagi og sé sjaldnast ástæðu til að láta vita af því hvað þá að gera athugasemdir við þær. Þú gætir samt hæglega fylgst með fjölda heimsókna með því að hafa teljara sem teldi þær. Ég er viss um að hann sonur þinn setur upp svona teljara, bara ef þú nefnir það við hann.

Helga Tobiasen - sunnudagur 06 desember klukkan 21:56

#2

Hej Atli
Jeg checker din hjemmeside hver dag og håber der er nyt..................
og jeg kan ikke forstå det du skriver på FB!!!!
kh
Helga

Atli - sunnudagur 06 desember klukkan 22:17

#3

Kærar þakkir Þráinn minn.
Tak kære Helga. Du kan jo bare lære islansk :))

Þórunn Sigurðardóttir - þriðjudagur 08 desember klukkan 09:33

#4

Sæll Atli frændi.Ég fer oft inn á heimasíðuna þína og meira að segja er ég búin að bíða eftir að sjá myndir og lesa ferðasöguna frá síðustu Klaustursferðinni sem þú fórst með Þórdísi og Fannýju. En eins og oft vill verða , því miður , þá gleymir maður að þakka fyrir sig eða að láta heyra frá sér. En ég hef haft alveg afskaplega gaman af að fylgjast með skrifum þínum á netinu og vona að þú haldir því áfram. Ég rakst fyrst á síðuna þína þegar ég var að " gúggla" Endelave fyrir þó nokkuð löngu síðan. Mikið er u fínar myndirnar af Bjarna og Filippusi. Bjarni er eins og unglamb þar sem hann situr við opna bílrúðuna.Bestu kveðjur. Þórunn

Atli - þriðjudagur 08 desember klukkan 10:15

#5

Takk fyrir það Þórunn mín. Það er líka gaman að fylgjast með Ágústu Rós á Facebook. Mikið er Salka litla falleg, en hún á nú ekki langt að sækja það þetta er svo falleg og góð fjölskylda sem þú átt. Kær kveðja

Ingrid - miðvikudagur 09 desember klukkan 12:59

#6

Kære Atli,

Endnu en gang enig med min søster.....jeg prøver ihærdigt, men det er altså langsommeligt at stave sig igennem det du skriver på islandsk :O)

knus, Ingrid

Helga Tobiasen - fimmtudagur 10 desember klukkan 10:33

#7

Det vil jeg meget gerne...kommer du snart til Danmark og underviser mig?

Linda - laugardagur 12 desember klukkan 18:47

#8

Ég kíki alltaf hérna inn enda gaman að lesa skrifin þín og þá missir maður ekki af neinu sem afi Wonder er að bralla. Bloggið er miklu miklu skemmtilegra en facebook. Áfram bloggið:)

Skrifaðu þitt álit / Skriv din mening:












Prinsessa AndradóttirHelga på Island 2003Edda systir