2. maí 2009
Í gær fór ég ásamt frænkum mínum, þær Örnu og Victoríu til Sevilla. Við lögðum af stað om ellefu leytið á BMWinum og Javier var eftir til að taka á móti gestum ef einhverjir kæmu í gistingu því mikið er um að vera allstaðar um þessa löngu helgi.
Ferðin gekk vel og við vorum í frábæru veðri, 28-30 °C og glampandi sól í rúma 6 klst í þessari fallegu borg. Maður þyrfti reyndar heila viku til að skoða það markverðasta .
Við fórum í klst. langa ferð í hestvagni, skoðuðum torg og byggingar og fengum okkur að borða. Ég fór einn að skoða kastalann Reales Alcazar og einnig dómkirkjuna (Catedral de Santa María de la Sede) sem er ein stærsta kirkjan í heiminum. Ég fór upp í kirkjuturninina (Giralda) sem er nærri 100 metra há og engin lyft eða tröppur heldur aflíðandi gangvegur alla leið upp þessar 34 hæðir.
Svo fengum við okkur ís á Plaza V de los Reyes.
Í alla staði vel heppnuð ferð og gaman að sjá spænsku stúlkurnar klæðast þjóðbúningum sínum og sem Victoría kallaði prinsessurnar. Svo kallaði hún mig afa.
Victoría, okkar litla prinsessa, var mjög þæg, góð og dugleg en var orðin þreytt á heimleiðinni og sofnaði í rúma klst. í bílnum.
Enn einn frábær dagur á Spáni,
I går var jeg sammen med Arna og Victoria i Sevilla. Vi tog afsted ved ellevetiden i deres BMW og Javier blev hjemme for at udleje værelser hvis der kom gæster. Det er en lang weekend i Spanien og mange ude at rejse.
Turen til Sevilla gik fint og vi var der i godt 6 timer i dejligt vejr, sol og 28-30 ° varme. Man kunne ellers godt bruge en hel uge i Sevilla bare for at nå at se det mest bemærkelsesværdige.
Vi tog en times tur i hestevogn (karet) og så alle de flotte torve og bygninger. Jeg var også inde at se borgen Reales Alcazar og inde í domkirken (Catedral de Santa María de la Sede) der er en af de störste kirker I verden. Jeg var oppe i det knap 100 m höje kirketårn (Giralda) og der var hverken elevator eller trapper så det var op ad bakke hele vejen op af de 34 etager. Vi spiste dejlig is på Plaza V de los Reyes.
Det blev til er rigtig dejlig tur og det var flot at se alle de spanske kvinder i deres folkedragter. Victoria kaldte dem prinsesser og mig for bestefar (afi). Vores prinsesse, Victoria, var söd og artig på hele turen, men var meget træt på det sidste så hun faldt i sövn i bilen på vejen hjem.
Endnu en dejlig dag i Spanien.





