29. janúar 2007
Ég náði að hjóla 70 km um helgina þrátt fyrir hálf leiðinlegu hjólaveðri. En ef maður er vel búinn er hægt að hjóla í nánast hverju sem er. Það er helst að mig vanti vatnshelda hanska og linsur því ég sé hálfilla þegar gleraugun eru blaut, sérstaklega í myrkri.
Það er mikið að gera varðandi kórinn minn þessa dagana því ég er á fullu að leggja lokahönd á skipulagningu Danmerkurferðarinnar í vor.
Atli Geir er aðeins að lagast í bakinu og vonandi gengur þetta tilbaka aftur. Dóttir hans, Bjarney Kata er búin að setja plástur á "báttið".
Hér kemur svo sniðug saga úr Efstasundinu: Bjarki er búinn að panta ferð fyrir fjölskylduna og mömmu sína til Tyrklands í sumar. Nágranni þeirra, Eddi, spurði Jóel Gauta hvort hann mætti ekki bara koma með. Jóel hugsaði sig mikið um og sagði svo þegar pabbi hans var farinn: "Heyrðu Eddi minn, ég ætla sko einn með mina fjölskyldu til Tyrklands"
Síðan spurði Bjarki hvort það væri ekki í lagi að Ása amma kæmi með. "Ég veit það nú ekki pabbi, hún tekur okkur aldrei með þegar hún fer til útlanda" .
Svo spurði ég Jóel hvort ég mætti koma með. Þá var hann hálf vandræðalegur, horfði á pabba sinn og sagði svo:" Nei afi minn það verður allt of dýrt að hafa þig með líka". Ég sagði að ég mundi nú borga sjálfur og þá sagði Jóel:"Nú, þá máttu alveg koma með" Hann tekur afskaplega mikinn þátt í heimilishaldinu og pælir mikið í hve dýrt það er fyrir pabba sinn að gera upp húsið í Efstasundinu.
Dóttirin Bríet Edel er ekki síður skemmtileg. Þegar ég var að hjóla í snjónum um daginn og var að leggja af stað heim úr Efstasundinu sagði hún:" Heyrðu nú afi minn, ertu viss um að þú sért nógu vel búinn í síðum nærbuxum og svoleiðis"?
Det blev til 70 km cykling i weekenden selv om vejret ikke var særlig cyklevenligt, men man jo næsten cykle i al slags vejr bare man er godt nok udstyret. Jeg savner mest vandtætte hansker og det ville også hjælpe at bruge kontaktlinser for det er svært at se ordentligt med våde briller, særlig i mörke.
Jeg har travlt disse dage med at planlægge korrejsen til Danmark i maj. Atli Geir har det lidt bedre i ryggen og hans datter Bjarney Kata har sat plaster på så det nu snart går over.
Nu kommer der en lille söd historie om Bjarkis börn: Familien har bestilt en rejse til Tyrkiet i sommer og farmor Ása skal også med. Da naboen spurgte deres 8 år gamle Jóel om han ikke også måtte komme med sagde han (så hans far ikke hörte det):" Hör nu her kære ven , jeg har skam tænkt mig at rejse alene med min familue til Tyrkiet" Da Bjarki spugte Jóel om ikke det var i orden at farmor Ása kom med sagde han: "Det ved jeg nu ikke rigtig far; hun tager da aldrig os med når hun rejser til udlandet".
Da jeg så spurgte om jeg måtte komme med blev Jóel helt mærkelig i hovedet og sagde omsider: "Nej ved du hvad farfar, det bliver da alt for dyrt for far hvis du også skal med" . Da jeg forklarede ham at så ville jeg selv betale sagde han at så måtte jeg godt tage med. Jóel er jo tit bekymret over hvor dyrt det er at istandsætte deres hus.
Datteren Brét Edel på 6 år er også en kvik og gammelklog pige. Forleden dag da jeg var ude at cykle i snevejret og havde besögt familien og skulle til at cykle hjem sagde ´hun:" Er du nu siiker på at du er klædt godt nok på farfar i det kolde vejr. Du har vel lange underbukser på?"






Linda - þriðjudagur 30 janúar klukkan 17:17
Haha fyndnar sögur úr Efstasundinu! kv. úr pestabælinu