Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

28. október. Eddas brev til mor

Edda ankommertil keflavík
Edda ankommertil keflavík
« 1 af 14 »
Ég var svo heppinn að Edda systir var búin að skrifa mömmu okkar bréf sem ég er með í tölvunni og get því sloppið nokkuð "billega" meðþví að þýða það yfir á íslensku og síðan að Copy-paste bréfið fyrir danska hlutann. En hér kemur bréf Eddu til mömmu okkar:
Kæra mamma.
Hér kemur smá ferðalýsing frá stuttu Íslandsferðinni hjá mér.
Ég fór að heiman klukkan 12 á fimmtudaginn og var kominn í íbúð Atla um miðnætti. þetta var löng ferð vegna þess að ég fór með rútu að heiman til flugvallarins í Gatwick og þurfti að bíða heillengi þar. Atli tók á móti mér í Keflavik og það var dásamlegt að komast í rúmið eftir langan dag. Atli á yndislegt heimili hér í Kópavogi, huggulegt og hagkvæmt. Hann vildi að ég svæfi í rúminu hans og hann sefur á skrifstofunni.
Það rigndi allan föstudaginn, en það er viðbúið á Íslandi á þessum árstíma. Það er ekki kalt, en snjóföl á fjöllunum hér í kringum Reykjavík. Við áttum rólegan dag, fórum aðeins í búðir og skoðuðum hús Halldórs Laxness sem er eins útlitandi og þegar hann var uppi og mjög athyglisvert að sjá það. Við borðuðum humarsúpu á skemmtilegum stað við höfnina í Reykjavík, (Sægreifinn).  Laugardagsmorgun fórum við snemma á fætur, sóttum Ágústu og Þórunni frænku áður en við ókum til Þórdísar í Dallandi.  Við vorum því fimm sem héldum af stað til Kirkjubæjarklausturs þar sem Bjarni er á hjúkrunarheimili. Við komum aðeins við í Hveragerði og Hvolsvelli og ókum í gegnum Fljótshlíðina á leiðinni. Þetta var löng ferð eða um 250 km
Atli keyrði stóra Land Cruiser bifreið hennar Þórdísar og það var glaðasólskin allan daginn. Bjarni var ánægður að sjá okkur þó að hann segi að þetta sé í sídasta sinn sem hann vill fá heimsókn (hann er reyndar búinn að segja það í mörg ár!)
Hann var búinn að panta lambasteik á hótelinu og var ákveðinn í að borga reikninginn fyrir sex manns með þriggja rétta mat og vín fyrir þá sem vildu. Sjálfur fékk hann sér vodkasnafs (eða tvo). Það var mjög skemmtilegt að vera með Bjarna, hann bæði söng og fór með kvæði og við skemmtum okkur vel og hlógum mikið. Bjarni hefur það mjög gott þar sem hann er og starfsfólkið elskar hann greinilega því hann er bæði sætur og fyndinn.
Eftir matinn ókum viðlengra í austur að litlu húsi undir Lómagnúpi, sem heitir Núpstaðir, þar sem mjög gamall vinur hans býr í fremur hrörlegu húsi. Vinur hans verður 100 ára í desember en ekur ennþá um í Subaru Forester bílnum sínum þótt hægt fari hann! Það var gaman að sjá þessa tvo öldunga tala saman og haldast í hendur á meðan. Bjarni sagði við vininn, Filipus, að hann ætti að flytjast á staðinn sem hann byr, hjúkrunarheimilið, því þar væri allt gert fyrir mann, matur, þvottur, bað ofl og maður þurfti ekkert að hugsa um neitt. En þá sagði Filipus að það væri nú ágætt að fá að hugsa stundum sjálfur !!!
Við kvöddum Bjarna og það virtist vera svolítið erfitt fyrir hann. Það var eins og hann vildi halda aðeins í okkur því að hann vildi jú meina að nú værum við að kveðjast í hinsta sinn. Hann er mjög hrifinn af Atla og líka af frænkum sínum tveim.
Ísland er stórkostlega fallegt og ég er mjög ánægð að við fórum þessa ferð. Aumingja Atli ók ca. 600 km þennan dag og og ekki alveg með góða heilsu, var búinn að vera hálfslappur og illt í hálsinum marga daga, Vonandi lagast hann fljótlega.
Í gær sáum við son Bjarka, Jóel Gauta, leika fótbolta og við heimsóttum Lindu, Andra og litlu sætu stelpuna þeirra og í gærkvöldi var stórt fjölskylduboð hjá Bjarka og Íris. Við hjálpuðumst að við að búa til kjötsúpu og við vorum saman komin, Bjarki, Íris, Bríet og Jóel, börn þeirra. Heiðar, Ágústa Guðný, Harpa, og Svava. Linda, Andri og Ágústa Rut. Atli Geir, Edda konan hans og dóttir þeirra Bjarney Kata, Atli og ég, eða samtals 16 manns sem er stóra yndislega fjölskylda Atla. Ég var svo ánægð að fá að hitta þau öll. Bjarki er búinn að vera að breyta húsinu þeirra í mörg ár og það er æðislega flott..
Í dag fór Atli í vinnuna en hann kemur bráðum heim. Klukkan er aðeins 10 að morgni þannig að við eigum einn dag eftir áður en ég fer aftur heim á morgun. Við ætlum að heimsækja Ingrid sem er á hjúkrunarheimili í Reykjavík og í kvöld er Ágústa búin að bjóða okkur í sviðaveislu.
Á morgun(þriðjudag) flýg ég heim aftur. Þetta er búið að vera dásamlegt frí og ég er ákveðin í að heimsækja íslensku ættingja mína oftar,en næst að sumarlagi. Ég vona að þú hafir það gott elsku mamma. Margar kærar kveðjur frá Atla og Eddu.

Fleiri myndir , sjá  Myndir/Eddas miniferie


 

 

 

                                                          Reykjavik 26.oktober 2009

 

Kære mor                                                           

 

Her er så en lille rejsebeskrivelse fra min korte tur til Island.

 

Jeg tog hjemmefra klokken 12 i torsdags og ankom her til Atlis lejlighed ved midnatstid. Det var en lang rejse, som skyldes at jeg tog med en bus hjemmefra helt til Gatwick lufthavn og at jeg også havde ventetid i lufthavnen. Atli tog imod mig i Keflavik og det var rart at komme i seng efter en lang dag. Atli har et dejligt hjem her i Kopavogur, hyggeligt og praktisk. Han insisterede  at jeg skulle have hans seng og han sover på sofaen inde på kontoret.  Fredag regnede det hele dagen, men det kan man vente i Island paa denne årstid. Der er ikke koldt og der er lidt sne på fjældene her omkring Reykjavik. Vi tog det med ro, gik lidt i forretninger og tog ud at se Laxness hus. Der står som da han forlod det og det var interessant at se. Vi spiste hummersuppe på et sjovt lille sted nede ved havnen.

 

Lørdag morgen var vi tidligt oppe, hentede  Ágústa Guðny og mødte Þorunn, før vi kørte ud til Þordis. Vi fem drog afsted mod Kirkubæjarklaustur, hvor Bjarni er på plejehjem. Vi var lige inde i Hveragerði og i Hvollsvöllur på vejen. Det var en lang tur, ca 250 km. Atli kørte Þordis store bil og det var strålende solskin næsten hele dagen. Bjarni var glad for at se os, selvom han siger at det er sidste gang han vil have besøg. (det har han vist sagt i flere år). Han havde bestilt lammesteg på hotellet og insisterede på at betale regningen for seks mennesker med tre retter mad og vin til dem det ville have det. Selv fik han en lille vodka (eller to!) Bjarni er meget underholdende, han både sang og resiterede digte. Vi havde det sjovt og lo meget. Han har det rigtig godt hvor han er. Personalet elsker ham, for han er både sød og sjov. Efter maden kørte vi med ham længere østpaa til et lille hus hvor   

hans meget gamle ven bor i et faldefærdigt hus. Hans ven bliver 100 år i næste måned. Det var morsomt at høre de to gamle tale sammen, mens de holdt hinanden i hånden. Bjarni sagde at  vennen, Filipus  skulle flytte derhen hvor han bor, på plejehjemmet. Bjarni sagde det var så rart, for man får det hele, mad, vask, bad m.m. og man skal slet ikke tænke selv på noget som helst. Filipus mente nu at det er godt at tænke selv!!

 

Vi sagde farvel til Bjarni og det lod til at være lidt svært for ham. Han lisgesom holdt på os, for han mener jo at det er sidste gang vi ser ham. Han er  meget glad for Atli og også for de to kusiner.

 

Island var overvældende smukt og jeg var meget glad for at vi fik den tur. Stakkels Atli kørte ca 600 km den dag og han har det slet ikke godt. Han har haft ondt i halsen og været halvsløj i flere dage. Forhaabentlig får han det snart bedre.

 

I går så vi Bjarkis søn Joel spille fodbold, besøgte Linda, Andri og deres søde lille pige. I går aftes var der så en stor familiekomsammen hos Bjarki og Iris. Vi hvde hjulpet hinanden med at lave kødsuppe og vi var Bjarki, Iris, Briet og Joel, deres børn. Heiðar, Guðny, Harpa og Svava. Linda, Andri og Águsta Rut (to år gammel og meget sød). Atli Geir og hans kone Edda samt deres datter Kata. Samt Atli og jeg. Det blev vist til 16 mennesker, som er Atlis store, dejlige familie. Jeg var så glad for træffe dem allesammen. Bjarki har været igang med at lave hus i mange år og det er rigtig flot.

 

I dag (mandag) er Atli gået på arbejde, men han kommer hjem om lidt. Klokken er kun 10 morgen så vi har en dag tilbage før jeg rejser hjem i morgen. Vi har tænkt os at besøge Ingrid som jo nu er på plejehjem her i Reykjavik og i aften har Águsta inviteret os til spise svið.

 

Så flyver jeg hjem tidligt i morgen. Det har været en dejlig lille ferie og jeg vil besøge mine islandske slægtninge noget oftere. Næste gang om sommeren.

 

Jeg håber du har det godt, kære mor.

 

Mange kærlige hilsener fra Atli og Edda


Der er flere billeder på Photo/Eddas miniferie

Skrifaðu þitt álit / Skriv din mening:












Bjarki, Ása, ömmustelpan, amma og HarpaBríet og vinkonan í heita pottinumLindas svigermor, Rut