Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

28. júní 2008

Fullfermi
Fullfermi
« 1 af 6 »
Nú er ég kominn "heim" til Odense aftur og lífið gengur sinn vanagang, Gott að vakna í morgun, fara í sturtu og heilsa upp á fólkið á hótelinu og borða morgunmat. Fór síðan á hitt hótelið og losaði bílinn og svo til Svendborgar með leiðalýsingar og að sækja hjól sem ég þarf að nota á mánudaginn.
Þegar ég var búinn að vinna varð ég allt í einu ansi værukær og háttaði bara upp í rúm og svaf í rúma klukkustund, ansi notalegt. Hjólaði síðan út í Føtex að versla í matinn og í kvöld eru soðin kjúklingalæri í sellerís/gulróta/púrrusósu.
Smá nammi lenti óvart ofan í körfu hjá mér þannig að í kvöld ætla ég að njóta þess að slaka á og horfa á breska sakamálamynd. Já, lífið er bara ágætt um þessar mundir.
Veðrið á líka að lagast í vikunni, hann á að snúast í austrið og þá hlýnar og sólin fer að láta sjá sig meira.


Nu er jeg kommet "hjem" til Odense igen og livet er gået ind i sine daglige folder igen. Det var godt at vågne i morges, tage brusebad og få en hyggelig snak med hotellets personale og spise morgenmad. Da jeg var færdig med at spise kørte jeg over til det andet hotel og tømte bilen og kørte til Svendborg med turbeskrivelser og at hente cykler jeg skal bruge på mandag.
Da jeg var færdig med dagens pligter på arbejdet blev jeg pludselig træt og søvnig, så jeg gik i seng og sov en times tid. Det var dejligt. da jeg stod op igen cyklede jeg over til Føtex og handlede madvarer så i aften står menuen på kogte kyllingelår i selleri/gulerod/porresovs. Så faldt der også lidt slik ned i min indkøbskurv ( det var ikke med vilje) men så kan jeg jo nyde en stille aften med lidt mundgodt og en engelsk krimi.
ja, livet er ikke det værste man har (som Poul Dissing synger i Benny Andersens sang om Nina).
Og nu er vejrudsigten da lidt mere sommerlig igen.

Skrifaðu þitt álit / Skriv din mening:












Útsýni yfir Elliðavatn og BláfjöllLouiseMálverkasýning HrafnhildarSvefnherbergi