Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

27. október

Elliðaáin rann mjúklega
Elliðaáin rann mjúklega
« 1 af 9 »
Mikið var gott að hafa nóg af skemmtilegum hlutum að fást við um helgina og losna við alla fréttatíma með niðurdrepandi leiðinda krísufréttir. Á föstudaginn fór ég á kóræfingu í Langholtskirkju, sem var skemmtileg. Þaðan fór ég að sækja Öldu og við fórum á Kringlukrána að borða með vinnufélögum úr Soginu og mökum, mjög góður matur. Svo var farið á Fló á skinni í Borgarleikhúsinu. Bráðfyndin sýning, en mér finnst ungir leikarar í dag tala allt of hratt og eru stundum illskiljanlegir. Margrét Helga Jóhannsdóttir bar af fannst mér, mjög gott að skilja hana.
Á laugardaginn söng ég á stórtónleikum í Langholtskirkju. Þar voru haldnir afmælistónleikar kórs Átthagafélags Strandamanna og voru þar samankomnir 6 kórar sem allir fluttu 4-5 lög sér og í lokin sungu allir kórarnir saman Maístjörnuna og Úr útsæ rísa Íslandsfjöll, yfir 200 manns að ég held.
Af tónleikunum fór ég beint að sækja Öldu og vinkonu hennar, Hrafnhildi, og við fórum á árshátíð Orkuveitu Reykjavíkur í  Gullhömrum í Grafarholti. Þar var gómsætur matur á borðstólum, skemmtiatriði og dans. Aðstaðan til að dansa var þó ekki góð og óþolandi að dansa innan um drukkið fólk skettandi úr glösum á dansgólfinu, þvílík ósvifni.
Í gær fór ég í göngu við Elliðavatn og um Elliðaárdalinn og tók þó nokkuð af myndum sem birtast hér til hliðar.
Það er frábært að vera í kór, hjóla, dansa og yfirleitt að hreyfa sig, því það gerir svo mikið fyrir sálartetrið, eykur vellíðan og bjartsýni og ánægjuna bar yfir að vera til og fá að lifa lífinu lifandi.
Það er einkum tvennt sem ég hef veitt athygli að undanförnu og er jákvætt: Annars vegar hefur bílaumferðin (og mengunin) minnkað og svo finnst mér fólk almennt sýna meira tillitssemi(nema drukkið fólk á dansgólfi) , kemur hvort annað meira við og fólk brosir meira, já, ótrúlegt en satt. Kannski finn ég það meira vegna þess að ég hef ásett mér að brosa sjálfur og að heilsa fólki í gönguferðum.


Hvor var det dejligt at have en masse spændende ting at tage sig til i weekenden og at være fri for at lytte til alle de deprimerende nyheder der strømmer ud af pressen disse dage. I fredags var jeg til morsom korøvelse i en stor kirke og derfra kørte jeg over til Alda og vi mødtes med mine arbejdskammerater og ægtefæller på en teater-restaurant hvor vi fik lækker mad før vi gik i teatret og så en rigtig sjov komedie. Det er bare ærgeligt at de unge skuespillere i dag taler så utydeligt og hurtigt  at de næsten ikke er til at forstå.
I  lørdags sang jeg til en stor koncert i Langholtskirken i Reykjavik. Der var 6 kor der hver sang 4-5 melodier og til sidst sang alle 6 kor to fædrelandssange sammen, over 200 sangere.
Om aftenen var vi til årsfest hos Aldas firma, med 3 retters dejlig mad, underholdning og dans. I går, søndag, gik jeg en lang tur i det smukke vejr og tog en masse billeder som I kan se her på siden.
Det er dejligt at synge i kor, cykle og danse og i det hele taget lave noget sjovt, det gør så meget for sjælelivet , styrker én og optimismen.
Der er to ting jeg har lagt mærke til og er positivt : Lørdagstrafikken er stærkt reduceret (og dermed også forureningen) og at folk smiler mere til hinanden og kommer hinanden mere ved. Det er måske også fordi jeg selv har bestemt mig til at smile mere og hilse på de mennesker jeg møder på mine cykle og gåture.
Álit / Min mening:

Ruth Fjeldsted - þriðjudagur 28 október klukkan 12:17

#1

Þetta eru sérlega fallegar myndir einkum númer 1 - 5 - 7 og 9. Ég sá skýin á 9. myndinni út um eldhúsgluggann hjá mér og þótti mér þau sérstaklega falleg. Bestu kveðjur Ruth

Ingrid - miðvikudagur 29 október klukkan 08:53

#2

Kære Atlim Sikke nogle smukke billeder! Kan godt se, at du har været på kursus :O) (spøj til side - du var jo i forvejen en god fotograf!!). Jeg er meget misundelig på, at Jonathan skal til Island på lørdag..... håber også, at vi andre får muligheden.. kh Ingrid

inge - fimmtudagur 30 október klukkan 15:45

#3

Kære Atli. Vi tænker på dig og dit land! Jamen, hvordan skal det dog gå? Det er dejligt at læse, at du tager det så flot. Og det gør sikkert mange andre gæve islændinge. Jeres fine forfatter Einar Már Gudmundson var netop i DK, da krakket kom, han sagde i et interview: "De kan tage pengene fra os, men de kan ikke tage lykken fra os!" - Tror, han har ret! Mange hilsner fra os begge Inge.

Skrifaðu þitt álit / Skriv din mening:












Íris søster Guðný og hunden KollaLízzí,Hrafnhildur og GunnarLeikkonan og fimleikakonan Bríet EdelFimleikar Jóel og Bríet