27. maķ 2008
Það er komin hitabylgja hér í Austurríki, 33°C og nefið á mér orðið rautt að vanda. Það hefur gengið vel að hjóla í dag og 42 km að baki. Það var fallegt að vakna í Ashach í morgun í blíðskapaveðri, borða morgunmat og leggja síðan af stað eftir Donau Radweg. Landslagið var talsvert öðruvísi í dag , en undurfagurt samt. Meira um undirlendi meðfram Donau og mikið af hjólatúrhestum á ferð.
Við vorum komin til Linz, sem er 3. stærsta borg Austurríkis með um 230.000 íbúa, um eitt leytið. Hótellið okkar er 4 stjörnu og við byrjuðum á að snæða hádegisverð á hótelinu en veitingastaðurinn er utandyra(og innan) en við kusum að sitja úti en báðum fljótlega um sólhlíf því það var óbærilega heitt undir sólinni.
Við höfðum lesið okkur til um að gaman væri að taka gamla fornlest upp á fjallið Pöstlingberg, en þaðan kú vera fallegt útsýni yfir Linz og til Alpana. Við hjóluðum áleiðis en þá kom í ljós að verið væri að endurbæta lestateinana og því engar ferðir upp á fjall.
Við fórum í staðinn í hjólaferð um miðbæinn, fengum okkur ís á Ráðhústorginu, skoðuðum Mozartshúsið og Alter Dom, (gömlu Dómkirkjuna) Settumst síðan í grasinu á vinstri bakka Donau og skoðuðum mannlífið og skipin sem sigldu framhjá.
Klukkan 1900 var okkur boðið til borðs á útiveitingastað hótelsins og snæddum þar gómsætan fjórréttaðan mat.
Enn einn góður dagur að baki og ég er orðinn ástfanginn af Austurríki, allavega af því sem ég hef séð hingað til.
Alda er búin að standa sig frábærlega á hjólinu, ótrúlegt því hún hefur jú aldrei fari í svona ferð eða hjólað svona langt áður.
Der er hedebölge i Östrig, 33°c og min næse er blevet röd som sædvanlig. Det gik fint at cykle de 42 km i dag og det var smukt at vågne i Aschach i morges, spise morgenmad og starte cykleturen af Donau Radweg. Landskabet var anderledes i dag, mere lavlandet end i går men idyliskt og smukt var det. Der var mange cykelturister på stierne, men aldri trænsel og det var nemt at komme frem.
Vi nåede til Östrigs 3. störste by, Linz, med ca. 230.000 indbyggere, ved et tiden og startede med et måltid mad på vores 4 stjernede hotel, Steinenberger, og vi sad udendörs på terassen med udsigt over Donau. Vi blev dog hurtigt nöd til at bede om en parasol da det var ulidelig varmt i en stærke sol.
Vi havde læst at det var en god tur at tage op på det 550 meter höje fjeld, Pöstlingberg, hvorfra der skulle være den smukkeste udsigt over Linz og til Alperne. Der skulle ligge en antik-togbane op på bjerget, men da vi nåede ud til foden af bjerget så vi at de var ved at renovere hele banen så vi måttee opgive at komme derop, ihvertfald denne gang. I stedet cyklede vi en tur i centrum, spiste is på Rådhuspladse, så Mozarts hus og den gamle Domkirke (Alter Dom).
Da vi ikke gad cykle og sightsee mere lagde vi os i græsset på Donaus venstre bred og kiggede på skibene der sejlede forbi.
Klokken syv var der lagt på bord til os på terressen hos hotellets restaurant og vi spiste lækker 4 retters mad.
Endnu en dejlig dag tilbagelagt og jeg er forelsket i Donau og Östrig, ihvertfald af det vi har set indtil nu.
Alda har været utrolig dygtig til at cykle de mange km. for hun har jo aldig prövet at cykle sadan en tur eller så mange km.





