Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

26. maí 2008

Der er fristelser allevegne.../Allstaðar freistingar
Der er fristelser allevegne.../Allstaðar freistingar
« 1 af 10 »

Í dag gátum við sofið til 0630, þetta er allt að koma. Eftir kjarngóðan morgunverð, niðurpökkun og uppgjör á hótelinu hjóluðum við niður að höfn og náðum í miðana okkar fyrir siglinguna með Reginu Danabu til Engelhartszell og hjóluðum svo smá rúnt um bæinn, en skipið sigldi síðan á slaginu 12:00.

Það var ægifagurt að sigla eftir Donau og við sátum uppi á efsta þilfari og nutum útsýnisins í botn.

Eftir eina og hálfa klst. siglingu fórum við í gegnum skipalyftu við orkuverið í Jochenstein sem nýtir vatnið í Donau til að framleiða 30 MW í 5 hverflum. Í Engelhartszell fórum við frá borði og steinsnar frá þeirri bryggju fórum við í litla ferju sem flutti aðeins hjólafólk yfir á vinstri bakka Donau en þar hófst hin eiginlega hjólaferð okkar.

Snæddum hádegisverð á litlum útiveitingastað og hjóluðum svo áfram meðfram Donau og þetta er einhver fallegasta leið sem ég hef augum litið. Við lentum í Aschach upp úr kl. 17:30 og gististaður okkar í nótt er á mjög fallegum stað lengst uppi í fjalli og við borðuðum mjög ljúffengan mat á stórri verönd fyrir framan hótellið með útsýni yfir fljótið og bæinn hinumegin.

Við erum búin að hjóla um 50 km í dag og það verður gott að leggjast í rúmið á eftir og hvíla lúin nein.

Yndislegur dagur er á enda.

 

I morges stod vi ikke op för lidt i syv og efter en dejlig morgenmad pakkede vi vores kufferter og cykeltasker og körte en tur i byen og hentede billetter til sejlturen de förste 25 km ned af Donau. Vi sejlede nöjagtigt klokken 12:00 og det var en vidunderlig smuk sejltur der tog halvanden time.

Da vi havde passeret slusen i Jochenstein hvor der ligger et vandkraftværk der kan producere 30 MW, lagde vi an i Engelhartszell og derfra sejlede vi med en lille cykelfærge over til Donaus ventre bred og der cykede vi de knap 50 km til Aschach hvor vores hotel ligger smukt oppe i bjergsiden og vi har udsigt over floden og den lille smukke by på den anden side.

Det har været en utrolig smuk dag med mange dejlige indtryk, men det bliver også godt at komme i seng og hvile trætte ben.

Álit / Min mening:

Linda - mánudagur 26 maí klukkan 23:15

#1

Gaman að lesa ferðasöguna ykkar, þetta hlýtur að vera alveg frábært:) Ég hefði nú samt ekki trúað því að langafinn myndi labba upp síðustu brekkuna, það er nú ekki líkt honum;) Vil ekki sjá fleiri þannig myndir....hahaha koma svooooooo!

Skrifaðu þitt álit / Skriv din mening:












Útsýni yfir Elliðavatn og BláfjöllLeikkonan og fimleikakonan Bríet EdelBríet Edel BjarkadóttirSteffen og ClaraBjarki og Íris