Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

23. maí 2007

Stamcaféen i Dragör
Stamcaféen i Dragör
« 1 af 2 »

Þá er Bjarni farinn heim og ferðin gekk vel hjá honum. Ég hringdi í hann í gærkvöldi. Ég ætla að segja aðeins betur frá ferðalagi okkar, í það minnsta það sem ég skrifaði í fyrrakvöld en hvarf með internetsambandinu.
Á mánudagsmorgun hvartaði ég undan netsambandinu við hótelstjórann og hann tók því vel og afhenti mér gjafabréf fyrir einni nótt með morgunverði fyrir tvo. Það gildir til febrúar 2009. Aldrei að vita nema maður noti það einhverntímann!!
Næsti áfangastaður okkar var Birkeröd en þar tóku Núdí (móðursystir) og Frank, sonur hennar vel á móti okkur. Við horfðum á gamlar fjölskyldu-myndbandsspólur og borðuðum ekta danskt smurbrauð. Frank ók okkur líka út í skóg og við skoðuðum tré sem eru meðal þeirra stærstu og elstu í Danmörku. Það fannst Bjarna meiriháttar gaman.
Næst héldum við til Sandy, (dóttir Bjarna) á Frederiksberg og sátum hjá henni nokkrar klst. og spjölluðum. Síðan fundum við hótelið okkar á Amager, ókum út í fiskimannaþorpið Dragör og drukkum Caputino á uppáhaldskránni okkar og enduðum svo deginum í flæskesteg hjá Helgu og Per.
Í gærmorgun fórum við Bjarni aftur út í Dragör. Karlinn hefur svo gaman af að skoða gömlu húsin þar, spjalla við fólkið og ganga um þennan fallega litla bæ. Hann er líka ótrúlega duglegur að ganga og lendir alltaf á kjaftatörn við fólk.
Í Kastrip hittum við Gottskálk í Harðviðarvali og konu hans og þau tóku Bjarna alveg upp á sína arma og sáu um hann  þar til Bjarki sonur minn tók á móti Bjarna í Leifsstöð.
Eftir hádegið í gær naut ég góða veðursins, sól og 25°C í garðinum hjá Helgu og lék við hundana. Svo sótti ég Per í vinnuna hjá Statoil og við fórum í vinnuna til Helgu hjá Assistance og síðan fór ég með þeim í dans. Svo keyptum við okkur pitsur ofl í kvöldmatinn og að lokum fórum við Helga í gönguferð með hundana tvo.


Jeg vil lige skrive lidt om det der forsvandt med netforbindelsen i forgårs. Mandag morgen klagede jeg til hoteldirektören over internettet der skulle være på hotellet i Antvortskov. Han var meget ked af det  og jeg fik et gavekort til en nat for to i et dobbeltværelse med morgenmad. Det skal bare bruges för februar 2009. Man ved jo aldrig,

Vores næste stoppested var hos Nudi og Frank i Birkeröd hvor vi fik en varm modtagelse. Vi så gamle familiefilm og spiste ægte danskt smörebröd. Frank körte os også ud i skoven hvor vi så nogle af de ældste og störste træer i Danmark. Det var lige noget for Bjarni.
Fra Birkeröd körte vi til Frederiksberg hvor vi besögte Bjarnis datter Sandy og sad og snakkede med hende et par timer.Dernæst fandt vi ud til vores hotel på Amager. Vi körte også ud til Dragör og drak caputino på vores stamcafé og dagen endte med lækker flæskesteg hos den gæstfri familie på Gyldenvang Allé.
I går morges körte Bjarni og jeg igen ud til Dragör. Bjarni synes det er så morsomt at gå rundt og se de gamle huse og både, snakke med folk og han kommer jo altid i snak med nogen. Han er også utrolig god til at gå endnu synes jeg.
I lufthavnen traf vi et södt ægtepar fra Island der skulle med samme fly til Island som Bjarni og de tog sig af ham hele vejen til Keflavik hvor min sön Bjarki hentede ham. Jeg ringede til Bjarni i går aftes og turen hjem gik fint sagde han.
I går eftermiddag nöd jeg det gode vejr i haven hos Helga og Per og lejede med hundene. Klokken 1530 hentede jeg Per hos Statoil og vi körte hen til Helgas arbejde hos Assistance og jeg var også med ude i Torbens danseskole at se dem danse både Standard, latin og Hiphop. Det var skægt. På vejen hjem köbte vi pizza og dagen endte med at Helga og jeg gik en tur med hundene.

Skrifaðu þitt álit / Skriv din mening:












TobiasHelga på Island 2003Þórunn frá SámstöðumÞýska þjónustustúlkan MonicÁ leiðinni heim / På hjemvejen