23. febrúar 2008
Skrifað þann 24. febrúar 2008
Ég vaknaði um níu leytið í morgun og eftir blaðalestur og morgunmat fór ég á fundinn minn. Gott að hitta félagana aftur.
Eftir fund fór ég niður í Dansskóla Jóns Péturs og Köru að sjá Bríet Edel Bjarkadóttir dansa samkvæmisdansa. Hún er mjög efnileg, enda ekki langt að sækja það!!!
Þaðan var haldið til Lindu og Andra að aðstoða við fluttninga. Heiðar tengdasonur og ég vorum aðalega í að setja saman Ikea húsgögn og pæla í raflögnum og töflum.
Ágústurnar tvær litu við í heimsókn og Hjalti og kærasta komu að hjálpa til. það verður mjög huggulegt hjá þeim skötuhjúum og Linda er í essinu sínu við að raða og skipuleggja. Ég komst að því (vissi það reyndar fyrir) að það var gott að hafa samvinnu við heiðar tengdason, enda er hann nú Samvinnuskólagenginn. Svo er Linda dóttir hans búin að uppnefna hann heiðar millimeter því hann vill hafa allt akkúrat. Það minnir svolítið á Bjarka.
Svo er hún búin að breyta mínu "afi wonder" nafni í "Afi Power". Já hún Linda kann að koma lýsingar á framfæri, enda með eindæmum frábær íslenskukennari. Þetta er nú reynar ekki íslenska, hvaða bull er þetta í mér.
Við "gömlu" mennirnir fengum svo frí um fimm leytið og ég kom við í Efstasundinu og lenti þar í nýbakaða eplaköku ala Írís, hið mesta lostæti.
Veðrið var svo fallegt að ég stóðst ekki mátið og keyrði upp í Grafarvog og smellti eitthvað af myndum sem fylgja hér með. Mér finnst myndirnar mínar ágætar, en það er nú bara vegna þess að myndavélin er svo fræbær en ekki vegna kunnáttu minnar.
En þetta kemur vonandi allt með æfingunni.
Í kvöld eldaði ég svínahnakkasneiða og horfði á "This is my life" vinna þáttökurétt í Eurovision í Serbíu í vor. Mér fannst það líka besta lagið.
Jeg vågnede ved nitiden i morges og da jeg havde spist morgenmad og læst avisen körte jeg til möde i kirken og det var dejligt at se alle de gode venner igen.
Efter mödet var jeg henne i Bríet Edels danseskole og se hende tage dansetrinene. Hun var rigtig god til det, men æblet falder jo ikke langt fra stammen. Hendes far er en dygtig danser og hendes farfar kan jo også lidt!!
Derefter körte jeg hen til Linda og Andri og hjalp med at flytte. Det meste af tiden gik med at montere möbler fra Ikea sammen med min svigersön Heiðar. Det er godt at arbejde med Heiðar. Lindahar givet ham kælenavnet "Heiðar millimeter" for det hele skal være meget nöjagtigt. Det minder noget om min sön Bjarki. Linda har også lavet mit kælenavn om fra "Morfar Wonder" til "Morfar Power".
Vi to gamle fik lov til at gå ved fem tiden for da var nogle unge friske venner mödt op for at hjælpe til. Jeg körte videre over til Bjarki og der fik jeg nybagt æblekage ala Írís, den smagte rigtig dejligt.
Da vejret var smukt kunne jeg ikke modstå fristelsen for at köre op til Grafarvogur og tage nogle billeder. Solen var ved at gå ned og der var smukke farver, Jeg synes mine billeder er ret gode. Det er ikke fordi jeg er dygtig, men det er nok fordi kamaraet er et tekniskt vidunder. Men jeg skal nok lære at blive en god fotograf. Rom blev ikke bygget på en dag.
Til aften stegede jeg nakkekam og så forvalg til Euravision.





