Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Żmsir tenglar

« 2012 »
« Maķ »
S M Ž M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

22. september 2007

Bjarni fręndi
Bjarni fręndi
« 1 af 1 »
Hefðbundinn laugardagur. Ég er búinn að gera eitthvað fyrir sálina, líkamann og  náungann í dag. Fór á fætur um níu leytið, fór í sturtu og borðaði cheerios og lýsi. Hjólaði svo á fundinn minn sem var góður og hjólaði svo heim aftur.
Eftir beikon og egg sótti ég Bjarna móðurbróður og við fórum í kringluna að kaupa Cintamani síðar nærbuxur á karlinn í Útilíf, 10980 krónur takk fyrir, hann var sko ekki að spara það. Fórum svo í Intersport og þar verslaði hann Nike stæl íþróttabuxur á tæpar 6000 kr. Við versluðum líka í Bónus. Bjarni var búinn að leita lengi af nougat ís og fann hann loksins. Kampavínsflaskan sem Bjarni keypti um síðustu helgi er búin, hún kláraðist á tveim dögum og bragðaðist vel að hans sögn.
Þegar ég var búinn að skila Bjarna heim fór ég að þrífa hjá mér og svo er ég að steikja lambaframpart handa mér í kvöldmatinn.

En ganske almindelig lördag. Jeg har gjordt noget for sjælen, kroppen og et andet menneske i dag og det glæder mig. Jeg stod op ved nitiden, tog brusebad og spiste Cheerios og levertran. Så cyklede jeg til mit möde og hjem igen.
Efter bacon og æg hentede jeg morbror Bjarni og vi var i mollet Kringlan og köbte lange Cintamani underbukser til knap 1000 DDK og Nike idrætsbukser til 500DDK.
Vi var også i Kronan at handle madvarer. Bjarne har drukket den champagneflaske han köbte sidste weekend og den smagte dejligt siger han.
Da jeg havde kört Bjarne hjem gjorde jeg rent i min lejlighed og nu er jeg ved at lave en lækker lammesteg til aftensmad.

Skrifašu žitt įlit / Skriv din mening:












Stoltur fašir / En stolt farMįlverkasżning HrafnhildarAnniBjarki, Įsa, ömmustelpan, amma og HarpaGestaherbergi