Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

20. október 2008

Ágúst Rut og Linda
Ágúst Rut og Linda
« 1 af 6 »
Þá er enn og aftir liðin heil vika síðan ég skrifaði. Sú vika er búin að vera viðburðarrík. Á mánudaginn byrjaði ég á Photoshop námskeiði hjá Pálma í Mosfellsbæ. þetta var þriggja kvölda námskeið, við vorum 8 nemendur og að sjálfsögðu var ég elstur. Það er orðið alveg sama hvað ég tek þátt í, alltaf er ég elstur!! Ég verð sennilega að fara að taka þátt í starfi eldri borgara til að vera ekki elstur!
En þetta var mjög lærdómsríkt námskeið og nú er ég að reyna að fylgja því eftir sem ég lærði.
það er þó greinilegt að það er ekki eins auðvelt að læra eins og þegar maður var yngri. þetta gengur þó bærilega, tekur bara aðeins lengri tíma en mjög gaman.
Á laugardaginn hjólaði ég á fundinn minn og síðan í kaffi og klippingu til Bjarka. Þaðan hjólaði ég gegnum Laugardalinn og áfram niður í bæ að kaupa "Á eigin spýtur í Photoshop" hjá "Eymundsson" og loks til Lindu í döðluköku og topp. Ágústa Rut var sofandi þegar ég kom en þegar hún vaknaði smellti ég nokkrar myndir á þær mæðgur þangað til sú litla sagði "Ekki siiiís" sem þyðir auðvitað að hún vildi ekki fleiri myndatökur. Linda og Andri ætla að heimsækja Kaupmannahöfn um næstu helgi.
Laugardagskvöld borðaði ég lambalæri með Öldu og Önnu Dúnu.
Í gær fór eg í göngutúr um hverfið hér við Elliðavatn og tók nokkrar myndir.


Så er der igen gået en hel uge hvor jeg har forsømt min hjemmeside. Det har været en travl uge der startede med et 3 dages Photoshop kursus. Vi var 8 elever og jeg var selvfølgelig den ældste. Det er mærkeligt, det synes jeg altid jeg er efterhånden når jeg er med til noget. Jeg skulle måske melde mig ind i en pensionistforening!
Men det var et interessandt kursus og jeg er flittig til at øve mig herhjemme. Det går fint, men tager laaaaang tid.
I lørdags cyklede jeg ned til Bjarki til en kop kaffe og klipning. Derfra cyklede jeg ned til centrum for at købe "Photoshop-lær det selv" og derfra til Linda hvor jeg fik dadelkage og sodavand. Ágústa Rut sov da jeg kom, men da hun vågnede skulle jeg selvfølgelig tage nogle billeder men det var hun ikke rigtig oplagt til så hun sagde "Ikke mere siiiis". Linda og Andri besøger København i næste weekend.
Lørdag aften spiste jeg lammesteg sammen med Alda og hendes datter og i går gik jeg en tur her ved Elliðasøen.
Álit / Min mening:

Ágúst, Hrefna, Sverrir og Saga - þriðjudagur 21 október klukkan 16:08

#1

Já svona er þetta pabbi minn, þú ferð að komast í heldri manna tölu:) Mynd 4 er brill alveg!

Linda - miðvikudagur 22 október klukkan 21:13

#2

Mynd 1 og 2 alveg brill líka;) Segi svona, þarf að fá þessar myndir hjá þér. Annars gekk ekki nógu vel hjá mér að fá gjaldeyri í dag, Byr vildi ekkert með mig hafa þar sem ég er ekki í viðskiptum þar en að lokum eftir að hafa farið í þrjá banka fékk ég í Glitni Lækjargötu! Þetta er nú meira ástandið...heyri í þér á morgun ps. þú átt sko enga samleið með eldri borgurum, þú verður bara að fara að villa á þér heimildir og segjast vera 55!

Skrifaðu þitt álit / Skriv din mening:












Linda, Litla, Bríet og Ása