Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

19. maí 2007

På vej til Endelave, den bedste ö i Kattegat
På vej til Endelave, den bedste ö i Kattegat
« 1 af 10 »

Við vorum næstum því búnir að sofa of lengi í morgun. Ég hafði stillt símann minn á vakningu klukkan 0700 en gleymdi að stilla á danskan tíma. Vaknaði þó klukkan 0810 og fór í sturtu  og vakti svo Bjarna. Það var þó ekki auðvelt, hann svaf svo fast að ég þurfti að hrista hann duglega.
Morgunmaturinn var frábær á hótelinu og þegar við vorum búnir að gera upp ókum við ca 15 km til Snaptun sem er lítill ferjubær við norðaverðu Horsensfjörð. Siglingin til eyjarinnar Endelave tók um eina klst. Veðrið var frábært í allan dag og mjög fallegt hér í Danmörku, allt svo grænt og ferskt.
Þegar við komum í land á eyjunni byrjuðum við á því að heilsa upp á kráareigandann og létum hann vita að við kæmum í mat um hádegið og værum báðir mjög veikir fyrir "Hakkeböf með lög og brun sovs"
Svo ókum við út að fyrrum herragarði afa míns og æskuheimili mömmu og Bjarna. Það var svolítið skrítin tilfinning að vera þarna og sjá mömmu mína fyrir mér sem 13-14 ára stúlka.
Herragarðurinn, sem heitir Louisenlund, er í dag í eigu Vejle sveitarfélagsins og er leigður út fyrir skáta og aðra hópa. Við Bjarni löbbuðum út í skóginn sem tilheyrir óðalinu og það var gaman að hlusta á Bjarna lýsa umhverfinu og hvernig lífið var hjá fjölskyldunni á árunum 1920-1924.
Við ókum einnig hringinn í kringum eyjuna eftir að hafa borðað frábært "hakkeböf" og skoðuðum kirkjuna, flugvöllinn ofl.
Klukkan 1615 flutti ferjan okkur svo tilbaka til Snaptun og við ókum sem leið liggur til Esbjerg á SV Jótlandi og erum búnir að fá pínulítið hótelherbergi á Palads Cabinn þar í bæ.
Okkur fanst ekki ástæða til að fara á veitingahús að fá okkur dýran mat þannig að ég gat aftur platað Bjarna í pylsu. Þið hefðuð átt að sjá svipinn á pylsusalanum þegar við löbbuðum út og Bjarni sagði:" Þetta voru heimsins lélegustu pylsur". Mér fannst þær reyndar mjög góðar og ég tjáði pylsusalanum það til að hugga karlgreyið.
Svo er bara draumalandið eftir, klukkan er að nálgast hálf tíu og Bjarni er reyndar sofnaður. Hann hlýtur líka að vera dauðþreyttur blessaður karlinn, búinn að vera á fullu í allan dag og aðeins drukkið tvo Elefantbjóra og einn jólabjór.


Det var lige ved at vi sov for længe i morges. Jeg havde stillet min telefon til at ringe kl 0700, men overså at indstille til dansk tid så jeg vågnede ikke för kl 0810. Jeg snuppede et kort brusebad og vækkede med besvær Bjarni, jeg måtte ryste ham kraftigt för han vågnede.

Vi spiste dejlig morgenmad på hotellet og körte derefter til Snaptun hvor vi tog færgen til Endelave. Det tog en time at sejle derover og vejret var dejligt, alt så grönt og ferskt. Da vi kom i land startede vi med at köre hen til kroen for at hilse på kroejeren og lade ham vide at vi begge to var helt vilde med Hakkeböf med lög og brun sovs.
Derefter körte vi ud til min morfars gamle herregård Louiselund hvor Bjarni og min mor boede som börn. Det var en underlig fölelse at stå der og se på alt det min mor har snakket så meget om og hvor hun levede som 133-14 årig pige for 80-85 år siden.
I dag ejes Louisenlund af Vejle kommune og bliver lejet ud til spejdere og andre selskaber. Bjarni og jeg gik en lang tur i skoven og det var morsomt og interessant at lytte til hans beskrivelser af livet på Louisenlund og alle hans narrestreger i barndommen.
Vi körte også en tur rundt om öen efter at have spist en lækker hakkeböf, vi var inde i kirken og ude at se flyvepladsen. Kl. 1615 sejlede færgen med os tilbage til Snaptun og vi körte direkte til Esbjerg hvor vi nu har fået et lillebitte værelse med dobbeltseng på Hotel Palads Cabinn i byens centrum.
Vi syntes ikke at det kunne betale sig at gå på fin restaurant her til aftensmad så jeg fik lokket Bjarni hen til pölsemanden igen. I skulle have set udtrykket på pölsemanden da vi gik og bjarni sagde: "Det var dog de usleste pölser jeg nogensinde har smagt". Jeg syntes da de smagte dejligt og jeg tröstede også den stakkels mand med at sige det til ham.
Nu er klokken ved at være 2200 og jeg skal snart i seng. Bjarni er faldet i sövn, han må da også  være dödtræt den stakkels mand. Han har jo fartet rundt med mig hele dagen og kun drukket to elefant öl og en juleöl.

Álit / Min mening:

Gústi - laugardagur 19 maí klukkan 21:08

#1

Greinilega stuð á ykkjur gamlingjunum :) Kveðjur úr hinni íslenzku sveit

Linda - sunnudagur 20 maí klukkan 10:55

#2

Ég sé Bjarna alveg fyrir mér bölva pylsunum;) Annars höfum við það alveg ótrúlega gott í Athvarfinu okkar og Ágústu Rut líðut greinilega ofsalega vel heima hjá langafa sínum og sefur eins og ljós:) Ég vökvaði börnin þín í gær og sagði þeim að pabbi þeirra yrði ekkert mjög lengi í burtu, ég held þau séu bara nokkuð sátt við okkur! Nema kannski kaktusinn sem var heldur fúll en hresstist svo við...hahaha!

Skrifaðu þitt álit / Skriv din mening:












EldhúsEldhúsLouise