17. apríl 2009
Ljúfir dagar á Spáni. Nú er ég kominn í helgarfrí í skólanum og í málningarvinnu hjá Örnu frænku. Á efstu hæðinni í þessu þriggja hæða húsi er 40 m2 þakverönd og ég er búinn að taka það að mér að skrapa gömlu málninguna af og mála upp á nýtt.
En námið gengur ágætlega, ég þarf reyndar að vera duglegur við heimavinnuna til að festa öllum þesum sögnum og nýjum orðum vel þarna uppi í hausnum á mér.
Í gær fór ég með Þórunni, Árna og Victoriu til Algeciras sem er nokkuð stór borg ca 30 km fyrir austan Tarifa. Þar keypti ég mér sólstól og við keyptum málningu og fleira fyrir skólann hennar Örnu. Heimsóttum líka McDonalds. Leigðum síðan bíl sem Árni og Þórunn fóru í til flugvallarins í Jerez í morgun, en þau eru á leiðinni heim til Íslands núna í kvöld. Ég borðaði líka hjá Örnu og co í gærkvöldi.
Á morgun er ég búinn að leiga mér hjól og verð með það þangað til ég fer heim 8. maí. Veðrið er orðið frábært, 25°c og sól og spáin góð fyrir helgina og næstu viku.
Dejlige dage i Spanien. Nu har jeg weekend-ferie i skolen og er begyndt at forberede malerarbejde på Arnas 40 m2 tagterrasse. Den gamle maling skal skrabes af og vi har köbt maling.
Det går fint med det spanske, men jeg bliver nöd til at lave en del hjemmearbejde hvis der skal blive noget siddende deroppe i hovedet.
I går var jeg sammen med Árni, Þórunn og Victoria i Algeciras, en ret stor by der ligger ca 30 km öst for Tarifa. Der köbte jeg en liggestol til terrassen og vi köbte maling og forskellige andre ting til skolen.. Vi besögte også Den Gyldne måge (McDonalds) og vi lejede en bil som Árni og Þórunn körte i til Jerez i morges.
Jeg var igen inviteret til at spise sammen med familien hos Arna.
I morgen lejer jeg en cykel og den beholder jeg indtil jeg rejser hjem igen den 8. maj. Vi har fint vejr, 25 °c og sol og de lover godt vejr i weekenden og hele næste uge.





