16. febrúar 2008
Skrifað þann 16. febrúar 2008
Eftir hádegið í dag fór ég á Laugarnesveginn að hjálpa Lindu og Andra að mála. það gekk vel og við náðum að klára að mála tvær umferðir yfir báðar stofurnar og ganginn.
Frábær íbúð sem þau eru búin af festa kaup á, maður fær svo góða tilfinningu þegar maður kemur inn í hana og svo er hún stór og vel skipulögð.
I kvöld eldaði ég purusteik og tókst bara vel hjá mér, puran stökk og "crispy". Síðan horfði ég á spaugstofuna og laugardagslögin. Og góðu fréttirnar eru að Man. United vann Arsenal 4-0 á Old Trafford.
I dag har jeg hjulpet Linda og Andri med at male deres nye lejlighed. Det gik fint og vi nåede at male begge stuerne og gangen to omgange.
Det er en dejlig lejlighed de har köbt, man få sådan en god fornemmelse når man komme ind i den og den er rummelig med to stuer og tre soveværelser, godt 90 m2.
Til aften lavede jeg ribbenssteg og den var rigtig lækker og med spröd svær. Så har jeg set lidt fjernsyn og en glædelig nyhed var at Man. United vandt 4-0 over ærkefjenden Arsenal på Old Trafford.





