14. og 15 júlí 2007
Ég var orkulítill í gærkvöldi og því ekki í stuði að skrifa, enda var vinnudagurinn orðinn langur.Eftir farangurskeyrslu í morgunsárinu tæmdi ég bílinn í Odense og hélt af stað til Norðursjálands til að gera upp hjól á verkstæði BikeDenmark. 19 stk. hjól og 2 tengivagnar komust í bílinn og ég var í Odense aftur kl 2200 eftir viðkomu hjá Gyllta mávinum ( McDonalds) í Nyborg.
Þessi dagur var aðeins styttri, en þó mikið að gera. Sendi fólk frá Mexikó, Skotlandi, Hollandi, USA og Sviss af stað frá Svendborg í ferðina Ten islands in ten days þar sem fólkið heimsækir tíu eyjar á tíu dögum, mjög skemmtileg ferð hjá BikeDenmark. Ók síðan með farangur frá Langalandi til Svendborgar og þaðan til Nyborgar. Að lokum raðaði ég svo upp hjólum hjá hótelinu, en næststærsti brottfaradagur sumarsins hjá mér er á morgun þegar yfir 30 manns leggja af stað í ferðirnar tvær sem hefjast í Odense.
Þegar ég var að koma úr eldhúsi hótelsins þar sem ég var að þvo fötin mín, hitti ég íslensk mæðgin sem voru að innrita sig. Þau voru að koma frá knattspyrnumóti í Hilleröd þar sem 13 ára strákurinn var að keppa fyrir Fram. Við fórum aðeins að spjalla og ég varð náttúrulega að segja frá því að tengdasonur minn, Heiðar, væri mikill Frammari og ekki síður að Andri Fannar Ottósson væri kærasti dótturdóttir minnar. Maður má nú aðeins monta sig, ekki satt?
Jeg havde ikke så megen energi tilbage til at skrive da jeg kom hjem efter en 14 timers arbejdsdag i går. Efter bagagetransport i går morges tömte jeg varevognen i Odense og körte til Nordsjælland for at klargöre 19 cykler som jeg tog med til Odense + 2 trailere til börn. Jeg var ikke i Odense för kl. 2200 men jeg aflagde også et besög hos den Gyldne Måge i Nyborg.(McDonalds)
Arbejdsdagen var noget kortere i dag, men alligevel travl. Jeg havde en international afgang fra Svendborg med Mexikanere, Skotter, Hollændere, Amerikanere og Schweitsere. De tog afsted på turen der kaldes Ten Islands in ten days og er en fantastisk flot rute hos BikeDenmark. Derefter körte jeg bagage fra Spodsbjerg til Svendborg og derfra til Nyborg. Til sidst stillede jeg cyklerne op i rigtig rækkefölge til de to afgange fra Odense i morgen. Det er de næststörste afgange i sommer.
Da jeg var på vej ud af hotellets kökken i aften med mit vasketöj så jeg en Islandsk dame med sin13 årige sön. Jeg kom i snak med dem som de fleste Islændinge jo gör når de mödes i udlandet. Drengen havde været til fodboldstævne i Hilleröd og han spiller i klubben Fram på Island.. Da jeg hörte det fortalte jeg dem at min svigersön, Heiðar, er en stor Fram tilhænger og jeg måtte jo også stolt fortælle dem at et af Frams store navne for et par år tilbage er mit barnebarns kæreste, Andri Fannar Ottosson . Jeg har da lov til at være lidt stolt over det, ikke sandt?






Linda - sunnudagur 15 júlí klukkan 23:17
Jú þú mátt sko alveg monta þig enda einstaklega góðir menn báðir tveir;) Síðan er ég líka alltaf að monta mig af afa mínum sem hjólar stundum yfir 30 km á dag;) Hafðu það gott afi minn, við hugsum til þín héðan úr Hvarfinu og Kalli kaktus bað að heilsa pabba sínum en hann var vökvaður í dag á sunnudegi því systurdóttir hans gleymdi sé aðeins í gær;) Vona að honum verði ekki meint af!