Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

12. júní 2008

Með nýja hjólið fyrir framan
Með nýja hjólið fyrir framan "Svítuna"
« 1 af 3 »

Hér í Danmörku heldur veðrið áfarm að vera breytilegt. Fyrsti hjólahópurinn kom til odense í dag og allir mjög ánægðir. Fyrstu íslendingar sumarsins voru í þessum hópi, en ekki síðustu því sonur minn Bjarki, konan hans Íris og börnin þeirra Jóel Gauti og Bríet Edel eru væntanleg eftir 3 vikur og ætla að hjóla um Suðurfjón.
Ég sótti farangur til Nyborg í morgun og eftir hádegið hjólaði ég til Kølstup sem er lítill bær fyrir sunnan Kertiminde.  og þangað og til baka eru 35 km.
þegar ég kom til odense aftur fór ég í Føtex að versla. Ég fór að ráðum móður minnar og verslaði púrrur, sellerí og gulrætur og eldaði frábæra kjúklinga-kjötsúpu í kvöldmatinn. Ég hélt hún mundi duga mér í þrjár máltíðir, en hún var svo góð að hún dugar varla í tvær. Svo keypti ég ný jarðarber og rjóma til að gæða mér á í kvöld.
Ég náði líka að yfirfara 11 hjól og láta þau í bílinn og er þá tilbúinn með hjól sunnudagsins. Þegar enginn er til að taka myndir af mér verð ég að bjarga mér sjálfur þannig að þið munið hvernig ég lit út og hér eru myndir af mér, svítunni og nýja Kildemoes Street hjólið mitt frábæra.


Det ustadige vejr forsætter. Det første hold gæster ankom til Odense i dag og de var meget begejstrede for deres tur. Sommerens første islændinge var med på denne tur og om 3 uger kommer min søn Bjarki, hans kone Íris og deres to børn, Jóel Gauti og Bríet Edel og de skal på Sydfynsturen.

Jeg hentede bagage i Nyborg i morges og om eftermiddagen cyklede jeg de 17 km til Kølstrup der er en lille by syd for Kerteminde

Da jeg kom til Odense handlede jeg i Føtex og min mor havde peget på at jeg skulle være dygtig til at spise grønsager så jeg købte porrer, selleri og gulrødder og lavede en lækker hønsekødsuppe og jeg troede at der var så meget af den at jeg kunne spise den til tre måltider, men den smagte så godt at der knap nok er nok til to. Jeg købte også friske jordbær og fløde til at hygge mig med i aften.
Jeg nåede da også at klargøre 11 cykler og laste bilen til søndagens afgang. Når jeg nu ikke har nogen til at fotografere mig så bliver jeg jo nød til at gøre det selv så I ikke glemmer hvordan jeg ser ud !!! Så her kommer nogle billeder af mig, min "Suite" og min nye dejlige nye Kildemoes Street cykel.

Álit / Min mening:

Linda - fimmtudagur 12 júní klukkan 22:19

#1

Þú manst að passa að hafa morgunrútínuna í lagi afi minn, vakna sjö, taka vítamínin og munnskolið og sitja svo alltaf á sama stað í morgunmatnum;) Nei segi nú bara svona.....hafðu það gott.

Afi - föstudagur 13 júní klukkan 13:23

#2

Já Linda mín, allt á sínum stað á réttum tíma. Annars var Indverji í sætinu mínu í morgun og ég missti auðvitað matarlistina!!!

Skrifaðu þitt álit / Skriv din mening:












Lízzí,Hrafnhildur og GunnarEldhúsSvefnherbergiStoltur faðir / En stolt far