Valmynd

Fréttir

Stilkarnir

Ýmsir tenglar

« 2012 »
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

11. mars 2008

Ágústa og hendes lille søde nyvaskede bil
Ágústa og hendes lille søde nyvaskede bil
« 1 af 2 »
Í gær hjólaði ég á kóræfingu í Grensáskirkju, en það var hálfgerð fýluferð því Keith fór beint í að æfa Carmina Burana sem kórinn á að flýtja í Carnegie Hall í New York í júní, en sem flestir vita verð ég að afþakka þetta ævintýri vegna sumarstarfs míns í Danmörku. Ég hafði þó 20 km hjólaferð upp úr þessu.
Svo var verið að aflýsa hjólferðina til Suðurenda Gardavatns sem ég hafði áhuga á vegna litillar þátttöku. En ég er búinn að finna aðra ferð hjá danskri ferðaskrifstofu sem heitir Merlot Tours og sést hér. Hún er reyndar líka mun ódýrari og vinnuveitendur mínir hjá Bikedenmark mæla með Merlot.
Í dag var Mansi vinur minn að aðstoða mig í Gasaflsstöðinni og í lok vinnudags kom Ágústa dóttir mín í heimsókn og við þrifum og bónuðum bifreiðina hennar.

I går cyklede jeg til korøvelse i Grensáskirke men det var snyd det hele for vores korleder, Keith, startede på øvelser af Carmina Burana som koret skal synge i Carnagie Hall i New York i juni. Der kan jeg jo desværre ikke være med på grund af mit gode sommerjob hos Bikedenmark. Jeg fik dog en 20 km cykletur ud af det.
Min planlagte cykletur til Gardasøen er blevet aflyst, der var for få tilmeldte. Men jeg tror jeg har fundet en anden tur hos et danskt rejseselskab der hedder Merlot Tours og I kan se turen her. Den er ovenikøbet temmemelig meget billigere og er anbefalet af mine arbejdsgivere hos Bikedenmark.
I dag har min ven, Mansi hjulpet mig med forskellige jobs i kraftværket og efter arbejdstid kom min datter Ágústa med sin bil som vi vaskede, polerede og støvsugede.

Álit / Min mening:

Ágústa - fimmtudagur 13 mars klukkan 12:56

#1

Takk fyrir síðast pabbi minn og fyrir hjálpina. Það er bara gaman að koma og þrífa bílinn hjá þér.Fyrir utan hvað hann var fínn á eftir. Eigðu góðan dag.

Skrifaðu þitt álit / Skriv din mening:












MetteDortemarcus og ChristianÁgústa Rut Andradóttir