11. desember 2007
Bríet Edel Bjarkadóttir er búin að vera hjá mér í 5 daga og á morgun koma mamma og pabbi hennar heim frá Flórida. Það er búið að vera yndislegt af hafa hana og ég sagði við Bjarka í símanum áðan að ég væri ekki viss um að ég mundi skila henni aftur. Bríet hefur svo góða lund og er nær alltaf í góðu skapi. Að hún skulir stundum liggja þversum í rúminu, spyrna löppinni í mig og reka olnbogann í hausinn á mér er henni fyrirgefið. Við erum sem sagt búin að eiga góða daga saman og ég á eftir að sakna hennar mikið, en það er nú samt stutt að fara til að heimsækja hana.
Við erum búin að setja skóinn út í glugga og vonum að jólasveinninn komi með eitthvað handa henni í nótt.
Í vinnunni hefur verið nóg að gera og hefur Mansi vinur og vinnufélagi verið mér til aðstoðar við að tæma og hreinsa annann eldsneytisgeymirinn í Gasaflsstöðinni og er hann að verða eins og nýr. En við Mansi höfum farið heim angandi af dísilolíu og lúnir í skrokknum.
Mit barnebarn, Bríet Edel Bjarkadóttir har boet hos mig i 5 dage og i morgen kommer hendes mor og far hjem fra Florida. Det har været vidunderligt at have hende og jeg sagde til min søn da jeg snakkede med ham i telefonen i dag at det ikke var sikkert at jeg ville aflevere hende hjem igen. Briet har et dejligt glad sind og er næsten altid i godt humør. Jeg tilgiver hende selv om hun nogle gange ligger på tværs i sengen og giver mig et spark eller en albue i hovedet.. Som sagt har vi haft nogle rigtig gode dage sammen og jeg kommer til at savne hende. Men heldigvis er der ikke langt til hendes hjem for at besøge hende.
Nu har hun stillet si sko ud i vinduskarmen og vi håber at julenissen kommer med noget til hende i nat.
Jeg har haft et par strenge dage på arbejdet og min ven og arbejdskammerat, Mansi, har hjulpet mig med at tømme og rense en af mine olietanke. Den indeholdt to millioner liler dieselolie og nu sert den ud som ny og skal testes i morgen, men vi to arbejdskammerater stinker af olie og har ømme rygge, men det går nok over igen.





