Valmynd Spurningin
Syrpur Athugasemdir

Ljósmyndun

Gamla góđa filman
Gamla góđa filman
Ég nota ljósmyndun til að sýna mína sýn á það sem ber fyrir augu mín. Ljósmyndun er góð til að skrásetja hlutina eins og þeir eru, hver á sínum tíma og skeiði. Eins og Spessi snillingur sagði við mig einu sinni þegar ég aðstoðaði hann við tökur á kven hetjunum, seríu sem hann tók hérna fyrir vestan 1998 eða 1999. "Þegar þú ert að mynda, þá ertu að documentera", sagði hann. Spessi hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Af og til rekst maður svo á ljósmyndara sem virkilega hrífa mann með sér og var mér bent á einn slíkann í dag af zeranico, sem virðist finna þessa gaura út um allt....
Meira

Áskorun

RSS!
RSS!
Usss, en mér var að berast áskorun. Eða hótun..eða hvatning, ferlega er þetta loðið. Félagi zeranico sem er gamall Ísfirðingur að nafni Pétur Geir Óskarsson óskaði eftir að fá að vita hvort þessi síða byði upp á RSS strauma, sem og hún gerir, og lét þau hörðu orð fylgja að hann gæfi mér viku í RSS lesaranum sínum, annars yrði ég bara rekinn. Þannig að ég í ofboði mínu, rauk til og bloggaði, því ekki vil ég vera rekinn úr RSS lesara hans hátignar, zeranico!

Gaman að geta þess að við Pétur erum gamlir vinir úr henni æsku og höfum nýverið tekið upp heiftarleg MSN skrif og endurnýjað vinskapinn að einhverju leyti...gaman að því.

Þarf svo að fara að setja upp þetta RSS icon!

Allt ađ gerast

Útlit 23.02,08
Útlit 23.02,08
Thjáhh, þessi síða vex og vex og eru nokkrar nýjungar komnar inn eins og t.d Flickr myndirnar mínar og sýnishorn úr myndasafninu mínu þarna neðst niðri einhverstaðar. Skellti inn einhverjum upplýsingum um mig og notkunarrétt á myndunum mínum líka. Einn bloggari enn kominn í bloggrúlluna og ég vona að þeir sem ég set þar inn, setji sig ekki á móti því. Nú, ef þeir sem vilja ekki vera þarna vilja láta taka sig út, þá bara hafa samband og þeim verður kippt út um hæl. Einnig setti ég inn slatta af tenglum og enn sem komið er eru þeir allir tengdir ljósmyndun á einn eða annan hátt.

Og Villi vitlausi virðist ætla að sitja áfram í stjórn borgar óttans...ja hérna :)

Ađ vera bloggari

Útlit 18.02.08
Útlit 18.02.08
þýðir víst það að maður verði að blogga einhvað. Er náttúrulega bara enn að vinna í þessari síðu, óánægður með margt, ánægður með sumt. Búinn að bæta við stórfæti hérna neðst og þarf að safna skemmtilegum bloggurum í rúlluna mína! Ef þig langar á þennan lista og er algert dúndur á lyklaborðið, sendu mér línu :) Er kominn með 2 mæta menn þarna inn, annar er nokkuð lunkinn í blogginu, en hinn er aðeins latari við skrifin. Skelli svo með skjáskoti af núverandi útliti.

Idol sucks!
Flickr
Bloggrúllan
04.02.2012 | TIME.com: Top Photoessays and Slideshows

Protestors March on Moscow

Demonstrators braved frigid temperatures toprotest Vladimir Putin's efforts to return for a third term as President
Fleiri blogg
Ljósmyndir