Valmynd Spurningin
Syrpur Athugasemdir

36

Sá forni
Sá forni
Já það er gaman að eldast, en í dag ku ég verða 36 ára gamall. Ekki degi eldri en 26 í huganum og þar er ég jafn gamall minni heittelskuðu Hrefnu. Ég held að dagurinn í dag verði góður þó mikið sé að gera. Er að undirbúa 2 sýningar og gengur það bara furðu vel. Einnig er strembinn dagur í vinnunni í dag, en ég er að fara að kynna vefkerfið okkar fyrir hugsanlega stærsta kúnna sem við gætum náð í hérna fyrir vestan. Þetta er líka verkefni sem mig hefur alltaf langað að gera og skulum við vona hið besta. En nóg um það.

Allar heillaóskir með afmælisdaginn óskast svo í athugasemdarkerfið bara :)

Aldrei fór ég suđur - JÁ

Rokkhátíđ Alţýđunnar á Ísafirđi 21. og 22. mars 2008
Rokkhátíđ Alţýđunnar á Ísafirđi 21. og 22. mars 2008
Susssss mar, nú líður að páskum! Á Ísafirði er haldin rokksúpa sem fyrirfinnst hvergi annarstaðar á landinu. Undanfarin á hefur þessi hátíð verið haldin af hugsjón einni saman og veit ég ekki til þess að nokkur skemmtikraftur sem kemur fram taki fyrir það laun. Og við erum ekkert að tala um neina aukvisa, en sjálfur Megas mun troða upp í ár. Læt hérna fylgja með tilkynninguna sem birt var núna fyrir helgina:

Rúmlega þrjátíu atriði hafa verið staðfest á Aldrei fór ég suður – rokkhátíð alþýðunnar sem verður haldin á Ísafirði dagana 21. og 22. mars. Þeir sem koma fram eru:
  • Bob Justman
  • Hjaltalín
  • Retro Stefson
  • Sprengjuhöllin
  • XXX Rottweilerhundar
  • Sign
  • SSSól
  • Mysterious Marta
  • Megas og Senuþjófarnir
  • Dísa
  • Hraun
  • Morðingjarnir
  • Skakkamanage
  • Karlakórinn Ernir með Óttari Proppé
  • Múgsefjun
  • Johnny Sexual
  • Ben Frost
  • Abbababb
  • Sudden weather change
  • Vax
  • Vilhelm
  • Hellvar
  • Hjálmar
  • Biogen
  • Skátar
  • Ultra mega teknóbandið Stefán
  • Steintryggur
  • Lára Rúnarsdóttir
  • Benny Crespos gang
  • Flateyrar-rapp
  • Hálfkák.
Hátíðin verður haldin í gömlu Eimskipa- og Ríkisskipaskemmunni við Ásgeirsbakka Ísafjarðarhafnar. Er hún haldin með dyggum stuðningi Flugfélags Íslands, Glitnis og Símans, en þar að auki nýtur hún fjárstyrks frá Eyrarrósinni og Menningarráði Vestfjarða og andlegum og verandlegum stuðningi einstaklinga og fyrirtækja á Ísafirði og víðar um land.

Újé!

Exposure - frćgur á Ísafirđi

Myndin á Kaffi Edinborg
Myndin á Kaffi Edinborg
Blaðaviðtal í bæjarblaði er skemmtileg upphefð. Ég varð þess heiðurs njótandi í þessari viku að hafa verið valinn í blaðaviðtal hjá Bæjarins Besta hér í bæ og tók hann Smári Karlsson viðtalið við mig. Finnst mér Smári skemmtilegur penni og er mjög ánægður með orðalagið og val hjá drengnum og fannst mér ég sjálfur nokkuð spennandi við lesturinn, þó mér þyki það ekki dags daglega. Hafðu þökk fyrir það kæri Smári. Með viðtalinu voru birtar einar 10 myndir, 9 eftir mig og ein tekin af vini, af mér. Þekur þetta heilar 2 síður í blaðinu og kemur bara skrambi vel út. Já maður er þá sennilega orðinn frægur á Ísafirði eins og sami aðili er tók myndina af mér sagði við mig þegar ég nefndi þetta viðtal við hann....
Meira

Ég segi nei

Arnarfjörđur
Arnarfjörđur
Olíuhreinsistöð eða ekki, það er spurningin. Virðist vera skollið á einhvað kapp á að segja já við olíuhreinsistöð á Vestfjörðum þannig að ég ætla að skella minni skoðun á málinu fram.
Framtíðarlandið kom með nokkrar uppástungur og virðast sumir fá mikið úr því að gera lítið úr þeim uppástungum, af hverju? Mér finnst bara nokkuð merkilegt að fólk sem er annarstaðar af landinu hafi áhuga á aðstæðum hér vestra og vil ég hér með þakka þeim fyrir að halda þessa fundi og ná að fá Össur Skarphéðinsson á loka fundinn og kynna honum hugmyndirnar.
Skítt með það þó þessi fundur hafi verið haldinn í Reykjavík, finnst það bara betra því þar er fólkið sem virkilega þarf að hlusta. Ég er samt ekki að lýsa yfir neinum stuðningi við Framtíðarlandið, tek það fram. Hef bara ekki kynnt mér þeirra sjónarmið nóg til þess....
Meira
Flickr
Bloggrúllan
04.02.2012 | TIME.com: Top Photoessays and Slideshows

Protestors March on Moscow

Demonstrators braved frigid temperatures toprotest Vladimir Putin's efforts to return for a third term as President
Fleiri blogg
Ljósmyndir