Valmynd Spurningin
Syrpur Athugasemdir

Grćjudagur

Canon EF 50mm f/1.4 USM
Canon EF 50mm f/1.4 USM
Græjudagar eru betri en aðrir dagar, svo það sé á hreinu. Var í verkefni um daginn og tók þá ákvörðun að aurinn sem fengist úr því verkefni yrði notaður til að kaupa linsu. Linsa þessi er mjög skemmtileg stúdíó og svona all around fyrir vélina mína og hef ég notað linsuna hans Baldur óspart síðasta mánuðinn, en ákvað í dag að það væri komið nóg af því að fá hana lánaða. Pantaði hana hjá Beco og reddaði hann Jói mér henni um hæl. Var meira segja svo bráðlátur að ég fékk hann Óla bróður minn til að skuttla henni á flugvöllinn og ætti græjan að lenda seinni partinn.

Græjudagar eru uppáhalds!

Vanrćksla

Saga ljósmyndari
Saga ljósmyndari
Já, það er ekkert annað orð til yfir þetta, en ég hef gersamlega vanrækt þessa blessuðu síðu mína undanfarnar vikur.....
Svona gerist oft þegar maður vinnur við vefsíðugerð, þá er áhuginn minni að uppfæra eigin síður. En kannski er það ekki bara það sem veldur, ég hef verið ferlega upptekinn við vinnu, bæði í Snerpu og líka við ljósmyndun. Ljósmyndavinnan er framar öllum mínum væntingum áður en ég byrjaði og hefur verið nóg að gera við að smíða myndir fyrir viðskiptavini.

Fínt að frétta, móðir mín og hennar ástkæri Dúddi fara að mæta í partýið á klakanum eftir vetrarsetu á Spáni og koma þau með farfuglunum núna í byrjun maí. Það verður rosa gaman að fá þau heim aftur og veit ég að mín litla verður ánægð að fá "ömmu á Spáni" aftur heim.

Crappswappa!

Sverrir

Saklausi Sverrir
Saklausi Sverrir
« 1 af 2 »
Sverrir var í heimsókn hjá okkur um páskana. Það er alveg frábært þegar bæði börnin mín eru í húsi og líður mér sjaldan betur. Saga litla dýrkar þennan dreng og skríkir hátt og snjallt þegar hún sér hann eftir langan tíma, enda er hann mjög góður við litlu systur sína.
Sverrir brallaði ýmislegt yfir páskana og held ég að hann hafi eignast nýtt áhugamál, en Kalli frændi hans tók sig til og kenndi drengnum á bretti og held ég að það sport sitji svolítið í þessum fjöruga dreng. Allavega ætlum við Hrefna, Hafdís og Davíð að splæsa í græjur fyrir hann í sumar svo hann eigi sitt eigið stuff næsta vetur, en hann fékk græjur hingað og þangað um páskana.
Sverrir er nú farinn suður og orðið tómlegt á efri hæðinni hjá okkur. En hann kemur aftur í sumar eins og venjulega og þá verður gaman.

Læt fylgja með 2 myndir sem við tókum um páskana, en litla fjölskyldan skellti sér í stúdíó saman.

Takk fyrir páskana Sverrir Úlfur.

Ljósmyndasýningar

Ein myndana á sýningunni á Langa manga
Ein myndana á sýningunni á Langa manga
Mig langar bara til að hvetja alla sem vetlingi geta valdið að mæta á mína fyrstu ljósmyndasýningu á Langa Manga í dag kl: 17:00. Sýndar verða 12 landslagsmyndir prentaðar á striga í stærðinni 50x70cm. Svo kl: 18:00 hefst mín önnur ljósmyndasýning, en það er samsýning áhugaljósmyndara og er sú sýning haldin í Edinborgarhúsinu. Báðar sýningarnar standa yfir alla páskana, sem btw verða algert dúndur. Bærinn er að fyllast af fólki og Skíðavikan að fara á fullt skrið. Nógur snjór er á skíðasvæðinu og er fullt að gerast hér og ber þar helst að nefna Aldrei fór ég suður rokksúpuna.

Rokk og ról!
Flickr
Bloggrúllan
04.02.2012 | TIME.com: Top Photoessays and Slideshows

Protestors March on Moscow

Demonstrators braved frigid temperatures toprotest Vladimir Putin's efforts to return for a third term as President
Fleiri blogg
Ljósmyndir